Snjallasta leiðin til þess að eiga frístundaeign

Þú nýtur lífsins, Heimkoma sér um rekstur og viðhald

Sameign er ný leið til að eignast frístundaeign. Þú átt í einu eða fleiri húsum en greiðir aðeins brot af því sem það kostar að eiga eign ein. Minni fjárfesting, minni kostnaður.

Kaup á hlut í frístundaeign hjá Heimkomu er fjárfesting í fasteign. Þú ert þinglýstur eigandi.

Þú nýtur eignarinnar, við sjáum um rest.

HEIMKOMA í fjölmiðlum

Velkomin/n heim

Heimkoma byggir upp og rekur samfélög eigenda sem eiga saman vandaðar fasteignir. Þú kaupir þinglýstan eignarhlut, færð afnot í samræmi við hlutinn og deilir kostnaði með öðrum eigendum.

Sameign dregur bæði úr upphaflegri fjárbindingu og rekstrarkostnaði hvers eiganda samanborið við að eiga sambærilega eign einn.

Við sjáum um bókunarkerfi, daglegan rekstur, viðhald og samskipti.

Kostir sameignar

  •  Minni fjárbinding
  •  Þinglýst og skýrt eignarhald
  •  Betri nýting fasteigna
  •  Kostnaður dreifist á eigendur
  •  Sveigjanlegt og sanngjarnt bókunarkerfi
  •  Rekstur og viðhald í höndum Heimkomu

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Heimkoma í sinni einföldustu mynd

Ein eign eða þrjár. Þú velur.

Heimkoma býður tvær leiðir fyrir kaupendur. Þú getur eignast hlut í stakri eign eða í samfélagi þriggja eigna.

Í báðum tilfellum ert þú þinglýstan eigandi. Þúhefur afnot í samræmi við hlutinn og deilir rekstrarkostnaði með öðrum eigendum.

Heimkoma sér um bókunarkerfi, rekstur og viðhald. Þú átt eignina – við sjáum um rest.

Stök eign

  • Þinglýstur 1/8 eignarhlutur
  • 42 dagar – sex vikur á ári
  • Hægt að kaupa fleiri en einn hlut
  • Rekstrarkostnaður skiptist á milli eignarhluta
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald



Samfélag þriggja eigna

  • Þinglýstur 1/12 eignarhlutur í þremur eignum
  • 84 dagar – tólf vikur á ári
  • Fjórar vikur í hverri eign
  • Rekstrarkostnaður skiptist á milli eigenda
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald
Hvers vegna Heimkoma?

Viðráðanleg fjárfesting og rekstrarkostnaður

Það er dýrt að eiga sumarhús – en það þarf ekki að vera þannig. Heimkoma gerir fleirum kleift að eignast draumaeignir með minni fyrirhöfn.

Fjárfesting

Þú kaupir hlut í fasteignum og nýtur þeirrar fjárfestingar - bæði í formi ávöxtunar og af nýtingu eignarinnar.

Rekstur

Kostnaður við rekstur og viðhald deilist á alla eigendur auk þess sem Heimkoma sér um allt skipulag.


Þrjú hús,
tólf fjölskyldur,
eitt einfalt kerfi

Ef þú átt sumarbústað eða frístundaeign á Íslandi af svipuðum gæðum og hús HEIMKOMU má gera ráð fyrir fjárfestingu uppá 100-120 milljónir. 

Fjárfestingin er mikil auk þess sem rekstrar- og viðhaldskostnaður er talsverður, en það þarf ekki að vera þannig. Í samfélagi hjá Heimkomu áttu hlut í húsi eða húsum og borgar aðeins í hlutfalli við eignarhlut þinn.

Heimkoma gerir venjulegu fólki kleift að eignast draumaeignir með lágmarks fyrirhöfn.

Heimkoma hefur umsjón með öllu sem þarf að huga að, en eigendur geta notið þeirra fríðinda að njóta lífsins í sínu eigin frístundahúsi.

12 fjölskyldur

12 vikur

3 hús

“Við fórum loksins upp í bústað og þá eyddi hann helginni í að fúaverja, laga hurðir og slá garðinn. Ég vildi bara koma og slaka á. 
Heimkoma leysir þetta allt – þetta er snilld.”

Guðlaug - fyrrverandi sumarhúsa eigandi og þátttakandi í rýnihóp

Hvernig virkar sameign?

Þú kaupir eignarhlut í fasteign/um með öðrum. Þú færð aðgang að kerfum Heimkomu og getur bókað ákveðinn fjölda daga á ári. Þú átt ekki fasta daga, en þú átt ákveðinn fjölda daga sem þú bókar þegar þér hentar.

Þú ert þinglýstur eigandi af fasteign/um og nýtur þess ef virðið eykst og þú getur selt þegar þér hentar. Rekstrarkostnaður dreifist á eigendur þannig að hann er mun lægri en hjá þeim sem eiga eign að fullu.

Heimkoma sér um rekstur, viðhald og þjónustu.

Þetta eru þægindin sem við viljum veita okkur

Einfaldaðu þér lífið og njóttu þess að vera á þínu öðru heimili áhyggjulaust.

Lúxus og gæði í hverju einasta húsi

Eignir Heimkomu eru hannaðar með þægindi og fagurfræði í fyrirrúmi. Öll hús eru glæsileg innréttuð með vönduðum húsgögnum og öllum nútímaþægindum. Þar sem við á, er heitur og kaldur pottur, gufa og einstakt aðgengi að náttúrunni. Húsin eru úthugsuð fyrir gæðastundir og afslöppun.

Fjölbreytileiki

Eignir Heimkomu eru staðsettar á mismunandi stöðum með ólíku landslagi og möguleikum: fjöll, skógar, strendur, haf, golf eða skíði. Þú velur umhverfi eftir stemningu og árstíð.

Áhyggjuleysi

Þegar þú ferð í þitt Heimkomu hús þarftu ekki að gera neitt annað en að njóta. Engar áhyggjur og engin ábyrgð á viðhaldi eða rekstri. Heimkoma sér um allt.

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru algengustu spurningarnar um málið.
Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu þá hvetjum við þig til þess að hafa samand.

Hvað fæ ég sem eigandi?

Þú eignast hlut í einni eða fleiri fasteignum með öðrum og færð ákveðin fjölda daga til afnota í samræmi við eignarhlut og fjölda eigna. Í bónus færð þú líka áhyggjuleysi vegna umsjónar og reksturs, það er á ábyrgð Heimkomu.

Þetta er ekki „time share“. Þú átt þinglýstan hlut í fasteign sem hægt er að selja hvenær sem er.

Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu til allra eiganda. Reglum má þó ekki breyta þannig að réttur eigenda til fjölda nýtingadaga minnki.

Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og annan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri né viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og komið er að henni. Eigendur hafa val um að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.

Allar bókanir fara í gegnum bókunarkerfi Heimkomu. Kerfið er sett upp samkvæmt bókunarreglum og tekur mið af notkun hvers eiganda.

Taktu fyrsta skrefið – við sýnum þér restina

Sameignarfyrirkomulagið er þekkt um allan heim.
Hér á landi hefur þetta fyrirkomulag helst verið nýtt varðandi flugvélar og báta, en nú nýtist þetta fyrirkomulag til að einfalda okkur að eignast drauma frístundaeign án mikillar fjárfestingar og samviskubits af lítilli notkun eða þess að vera með hnút í maganum út af banki í ofnunum.

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.