Snjallasta leiðin til þess að eignast frístundarhús
Þú nýtur lífsins, Heimkoma sér um rekstur og viðhald
Sameign er ný leið til að eignast frístundahús. Þú átt í einu eða fleiri húsum en greiðir aðeins brot af því sem það kostar að eiga eign einn, bæði í upphafi og í framhaldinu í formi mánaðarlegs rekstrarkostnaðar eða viðhalds.
Kaup á hlut í frístundaeign hjá Heimkomu er fjárfesting í fasteign. Kaupandi er þinglýstur eigandi að hlut í einni eða fleiri fasteignum.
Velkomin/n heim
Heimkoma er ný tegund fasteignaþjónustu á Íslandi þar sem nokkrar fjölskyldur deila einni eða fleiri gæða frístundaeignum í skipulögðu samfélagi.
Í fyrsta verkefni félagsins er um þriggja húsa samfélag að ræða þar sem hver fjölskylda á 1/12 hluta og á því 12 vikur yfir árið í sínum húsum (4 vikur í hverju húsi).
Eignirnar sem eru ætlaðar til heilsársnotkunar eru í þremur mismunandi landshlutum, sem tryggir fjölbreytta notkun allt árið.
Kostir sameignar
- Minni fjárfesting
- Lægri rekstrarkostnaður
- Betri nýting á fasteignum og innviðum.
- Sveigjanleiki í ljósi þriggja staðsetninga.
- Engar áhyggjur og ábyrgð á viðhaldi eða rekstri, Heimkoma sér um allt.
Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti
Heimkoma í sinni einföldustu mynd
Fyrsta samfélag Heimkomu eru þrjú lúxus hús hvert að verðmæti um 120 milljóna króna.
- 12 fjölskyldur deila fjárfestingu og rekstri.
- Hver fjölskylda eignast hlut í 3 húsum í mismunandi landshlutum.
- Hver fjölskylda hefur þannig 12 vikur árlega til afnota.
- Heimkoma sér um rekstur og viðhald.
Hlutverk eigenda er að njóta þess að eiga gæðastundir í sínum húsum.
Hlutverk Heimkomu er að gera þá upplifun ánægjulega og áhyggjulausa.
Hvers vegna Heimkoma?
Viðráðanleg fjárfesting og rekstrarkostnaður
Það er dýrt að eiga sumarhús – en það þarf ekki að vera þannig. Heimkoma gerir fleirum kleift að eignast draumaeignir með minni fyrirhöfn.
Fjárfesting
Þú kaupir hlut í fasteignum og nýtur þeirrar fjárfestingar - bæði í formi ávöxtunar og af nýtingu eignarinnar.
Rekstur
Kostnaður við rekstur og viðhald deilist á alla eigendur auk þess sem Heimkoma sér um allt skipulag.
Þrjú hús,
tólf fjölskyldur,
eitt einfalt kerfi
Ef þú átt sumarbústað eða frístundaeign á Íslandi af svipuðum gæðum og hús HEIMKOMU má gera ráð fyrir fjárfestingu uppá 100-120 milljónir.
Fjárfestingin er mikil auk þess sem rekstrar- og viðhaldskostnaður er talsverður, en það þarf ekki að vera þannig. Í samfélagi hjá Heimkomu áttu hlut í húsi eða húsum og borgar aðeins í hlutfalli við eignarhlut þinn.
Heimkoma gerir venjulegu fólki kleift að eignast draumaeignir með lágmarks fyrirhöfn.
Heimkoma hefur umsjón með öllu sem þarf að huga að, en eigendur geta notið þeirra fríðinda að njóta lífsins í sínu eigin frístundahúsi.
12 fjölskyldur
12 vikur
3 hús
“Við fórum loksins upp í bústað og þá eyddi hann helginni í að fúaverja, laga hurðir og slá garðinn. Ég vildi bara koma og slaka á. Heimkoma leysir þetta allt – þetta er snilld.”
Guðlaug - fyrrverandi sumarhúsa eigandi og þátttakandi í rýnihóp
Hvernig virkar sameign?
Þú kaupir eignarhlut í fasteign/um með öðrum. Þú færð aðgang að kerfum Heimkomu og getur bókað ákveðinn fjölda daga á ári. Þú átt ekki fasta daga, en þú átt ákveðinn fjölda daga sem þú bókar þegar þér hentar.
Þú ert þinglýstur eigandi af fasteign/um og nýtur þess ef virðið eykst og þú getur selt þegar þér hentar. Rekstrarkostnaður dreifist á eigendur þannig að hann er mun lægri en hjá þeim sem eiga eign að fullu.
Heimkoma sér um rekstur, viðhald og þjónustu.
Þetta eru þægindin sem við viljum veita okkur
Einfaldaðu þér lífið og njóttu þess að vera á þínu öðru heimili áhyggjulaust.
Lúxus og gæði í hverju einasta húsi
Fjölbreytileiki
Áhyggjuleysi
FAQ
Algengar spurningar
Hér eru algengustu spurningarnar um málið.
Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu þá hvetjum við þig til þess að hafa samand.
Hvað fæ ég sem eigandi?
Þú eignast hlut í einni eða fleiri fasteignum með öðrum og færð ákveðin fjölda daga til afnota í samræmi við eignarhlut og fjölda eigna. Í bónus færð þú líka áhyggjuleysi vegna umsjónar og reksturs, það er á ábyrgð Heimkomu.
Er þetta "time share" eða leiga?
Þetta er ekki „time share“. Þú átt þinglýstan hlut í fasteign sem hægt er að selja hvenær sem er.
Getur Heimkoma breytt reglum?
Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu til allra eiganda. Reglum má þó ekki breyta þannig að réttur eigenda til fjölda nýtingadaga minnki.
Hver sér um daglegan rekstur?
Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og annan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri né viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og komið er að henni. Eigendur hafa val um að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.
Hvað gerist ef eigendur brjóta reglur?
Taktu fyrsta skrefið – við sýnum þér restina
Sameignarfyrirkomulagið er þekkt um allan heim.
Hér á landi hefur þetta fyrirkomulag helst verið nýtt varðandi flugvélar og báta, en nú nýtist þetta fyrirkomulag til að einfalda okkur að eignast drauma frístundaeign án mikillar fjárfestingar og samviskubits af lítilli notkun eða þess að vera með hnút í maganum út af banki í ofnunum.
Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti



