Fjölmiðlar

Fréttir og upplýsingar frá Heimkomu.

Nýjasta fréttin er Heimkoma Reykjavík — ný leið til að eignast sinn stað í höfuðborginni.

Sjá nýjustu fréttatilkynningu ↓
01 Samfélag um þrjú hús02 Samfélag um eitt hús03 Heimkoma Reykjavík

Nýjasta fréttatilkynning

28. ágúst 2026 · Reykjavík

02

Ný leið til að eiga í Reykjavík

Heimkoma Reykjavík er ný leið fyrir fólk sem vill eiga sinn stað í höfuðborginni án þess að greiða 100 milljónir króna fyrir að kaupa og reka heila íbúð.

Með Heimkomu Reykjavík færist eignarhaldshugmynd Heimkomu inn í borgina.

Átta eigendur eignast saman vandaða íbúð og hverjum eignarhlut fylgja sex vikur á ári. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og bókunarkerfi.

Fyrsta Heimkomu-íbúðin verður í nýbyggingu við Laugaveg 170 á Heklureit. Lausnin hentar meðal annars fólki utan höfuðborgarsvæðisins, Íslendingum búsettum erlendis og þeim sem koma reglulega til Reykjavíkur. Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningunni.

Sameign Heimkomu

Þú átt. Þú nýtur.
Við sjáum um rest.

Sameign gerir fólki kleift að eiga raunverulegan hlut í vandaðri fasteign og greiða aðeins fyrir þann hluta sem það nýtir.

Eigendur deila kaupverði og föstum kostnaði, en hver þeirra hefur skýran eignarhlut og afnotarétt. Heimkoma sér um allt daglegt utanumhald – frá viðhaldi og rekstri til bókunarkerfis og þjónustu.

Þinglýst eignarhaldEkki time-shareSkýr afnotDagar og vikur í bókunarkerfiFull umsýslaRekstur og viðhald

Þrjár leiðir

Eitt eignarform.
Þrjár ólíkar þarfir.

01

Samfélag um þrjú hús

Tólf eigendur eignast saman þrjú vönduð frístundahús á Norðurlandi, Suðurlandi og Vesturlandi.

  • 3 hús
  • 12 eigendur
  • 12 vikur á ári

02

Samfélag um eitt hús

Átta eigendur eignast saman eitt fullbúið frístundahús og fá sex vikna nýtingu á ári.

  • 1 hús
  • 8 eigendur
  • 6 vikur á ári

03

Heimkoma Reykjavík

Átta eigendur eignast saman vandaða íbúð í Reykjavík og fá 42 daga nýtingu á ári.

  • 1 íbúð
  • 8 eigendur
  • 42 dagar á ári

Fréttasafn

Eldri fréttatilkynningar.

Fréttatilkynningar eru birtar í tímaröð. Nýjasta tilkynningin er alltaf efst á síðunni.

01

Fyrsta fréttatilkynning
25. febrúar 2026

Nýjung á íslenskum fasteignamarkaði

Heimkoma kynnti nýtt eignarform þar sem nokkrar fjölskyldur eignast saman eitt eða fleiri fullbúin frístundahús í mismunandi landshlutum.

3 frístundahús12 eigendur12 vikur á ári3 landshlutar

Almennar upplýsingar

Samstarfsaðilar.

Heimkoma vinnur með leiðandi sérfræðingum svo eignarhald, rekstur og upplifun standist skýrar gæðakröfur.

Arion bankiFjármögnun og vörslureikningur
BBA//FjeldcoLögfræði og samningar
Lind fasteignasalaFasteignasala
TEKKHönnun og húsgögn
OrmssonHeimilistæki og búnaður
THIRDHOMEAlþjóðlegt eignaskiptanet

Fjölmiðlabanki

Gögn, merki og myndir.

Efnið er samþykkt til opinberrar birtingar með umfjöllun um Heimkomu. Vinsamlega getið Heimkomu sem heimildar.

Viðtöl og heimsóknir

Vantar þig nánari upplýsingar?

Hægt er að óska eftir viðtali, nánari gögnum eða heimsókn í eignir Heimkomu. Einnig er velkomið að hringja hvenær sem er.

Hörður HarðarsonFramkvæmdastjóri og talsmaður Heimkomu+354 647 6000hordur@heimkoma.appBóka símtal/fund