Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 2. október 2026.

Hér útskýrum við hvernig Heimkoma vinnur með persónuupplýsingar þegar þú skoðar vefinn, sendir fyrirspurn, skráir áhuga, gerist áskrifandi að upplýsingum eða bókar símtal eða fund. Stefnan nær til íslensku og ensku útgáfu vefsins. Sérstakar upplýsingar geta einnig fylgt samningum, bókunum og annarri þjónustu.

1. Ábyrgð og samskipti

Heimkoma er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga vegna reksturs þessa vefs og meðferðar fyrirspurna sem berast okkur. Við vinnum með upplýsingar samkvæmt íslenskum persónuverndarlögum og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).

Fyrirspurnir og beiðnir um persónuvernd má senda á hordur@heimkoma.app eða hringja í +354 647 6000. Samskiptaaðsetur Heimkomu er Turninn, Smáratorgi 3, 201 Kópavogi, Íslandi.

2. Upplýsingar sem berast okkur

  • Samskiptaupplýsingar sem þú gefur upp, svo sem nafn, netfang og símanúmer.
  • Efni fyrirspurnar, áhugi á eign eða eignarhaldsleið, ósk um símtal og upplýsingar sem þú velur að senda okkur.
  • Upplýsingar um fund eða símtal, svo sem valinn tími og samskipti vegna bókunarinnar.
  • Tæknilegar upplýsingar um heimsókn, svo sem IP-tala, vafri, tæki, síður sem eru skoðaðar og samskipti við vefinn. Umfang valfrjálsrar mælingar ræðst af vafrakökuvali þínu.
  • Uppruni fyrirspurnar, tungumál og auglýsinga- eða herferðarupplýsingar, ásamt samþykki og afskráningaróskum.

Upplýsingarnar koma frá þér, notkun þinni á vefnum og þeim þjónustum sem þú notar í samskiptum við okkur. Ekki senda viðkvæmar persónuupplýsingar eða greiðslukortaupplýsingar í almennum fyrirspurnaeyðublöðum.

3. Tilgangur og grundvöllur vinnslu

  • Fyrirspurnir, óskuð símtöl og fundir: til að svara þér og taka skref að hugsanlegum samningi að þinni beiðni, eða vegna lögmætra hagsmuna okkar af því að sinna almennum erindum.
  • Upplýsingasendingar og póstlistar: á grundvelli samþykkis þíns þegar þess er krafist. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
  • Valfrjálsar vafrakökur, greining og markaðssetning: í samræmi við samþykki þitt og val í vafrakökustillingum.
  • Öryggi, bilanagreining og rekstur: vegna lögmætra hagsmuna okkar af öruggum og áreiðanlegum vef og samskiptum.
  • Samningsgögn, lögbundin varðveisla og úrlausn ágreinings: til að efna samninga, uppfylla lagaskyldur eða gæta lögmætra hagsmuna af því að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.

Skyldureitir í eyðublöðum eru merktir. Við þurfum nægar samskiptaupplýsingar til að svara fyrirspurn eða bóka samtal. Aðrir reitir eru valfrjálsir nema annað komi fram. Þú getur haft samband án þess að samþykkja valfrjálsar vafrakökur.

4. Þjónustuaðilar og miðlun upplýsinga

Við notum HubSpot fyrir fyrirspurnir, viðskiptatengsl og fundabókanir og MailerLite fyrir upplýsingasendingar. Hýsingar-, tölvupósts- og tækniaðilar geta unnið upplýsingar til að veita viðkomandi þjónustu. Aðgangur á okkar vegum takmarkast við það sem þarf vegna verkefnisins.

Vefurinn er tengdur Google Analytics og Google Ads fyrir mælingar og auglýsingar og Meta Pixel fyrir auglýsingamælingar. Valfrjáls rakning HubSpot getur tengt heimsóknir við samskiptasögu þegar hún er virk og viðeigandi samþykki liggur fyrir. Google Tag Manager heldur utan um mælingatengingar vefsins.

Heimkoma selur ekki persónuupplýsingar. Upplýsingar geta verið afhentar ráðgjöfum eða stjórnvöldum þegar það er nauðsynlegt vegna samnings, lagaskyldu eða réttarkröfu. Þegar þú velur að fara yfir á annan vef gilda einnig persónuverndarupplýsingar þess þjónustuaðila.

HubSpot · MailerLite · Google · Meta

5. Vafrakökur og samþykki

Þú getur samþykkt eða hafnað valfrjálsum flokkum og breytt vali síðar. Synjun stöðvar ekki sendingu fyrirspurnar sem þú sjálfur velur að senda. Upplýsingarnar í henni berast HubSpot til að við getum svarað þér.

Þegar Google-mælingar eru virkar getur samþykkisstýring Google sent takmörkuð mæli- og samþykkismerki án auglýsinga- eða greiningarvafrakaka þótt þú hafnir þeim kökum. Slík netbeiðni er ekki það sama og engin gagnasending og getur falið í sér tæknilegar upplýsingar um tengingu og tæki.

Lesa um vafrakökur og breyta stillingum. Afturköllun samþykkis hefur áhrif á áframhaldandi vinnslu á þeim grundvelli en ekki á lögmæti vinnslu sem þegar fór fram.

6. Vinnsla utan EES

Sumir þjónustuaðilar starfa á alþjóðavísu og geta unnið upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ef upplýsingum er miðlað þangað þarf miðlunin að byggjast á viðeigandi heimild og vernd, svo sem ákvörðun um fullnægjandi persónuvernd eða stöðluðum samningsákvæðum og viðbótarráðstöfunum eftir því sem við á. Þú getur óskað eftir nánari upplýsingum um viðkomandi miðlun og afriti af viðeigandi verndarráðstöfunum á hordur@heimkoma.app.

7. Varðveisla og eyðing

Varðveislutími ræðst af tilgangi upplýsinganna. Fyrirspurnir og samskiptasaga eru varðveitt meðan þörf er á að sinna erindinu og eðlilegri eftirfylgni. Ef viðskipti verða úr samskiptum geta viðeigandi gögn orðið hluti samnings- og viðskiptasögu. Lögbundnar varðveisluskyldur og þörf vegna réttarkrafna geta kallað á lengri varðveislu.

Við afskráningu hættum við viðkomandi markaðssendingum. Takmarkaðar upplýsingar um afskráningu geta verið varðveittar til að virða ósk þína og koma í veg fyrir endurskráningu fyrir mistök. Vafrakökur hafa eigin gildistíma og þú getur einnig eytt þeim í vafranum. Hafðu samband ef þú vilt upplýsingar um varðveislu tiltekinna gagna eða óska eyðingar þeirra.

8. Réttindi þín og afskráning

Eftir því sem skilyrði laga eru uppfyllt getur þú óskað aðgangs að upplýsingum um þig, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu og flutnings eigin gagna. Þú getur andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum og alltaf andmælt beinni markaðssetningu. Samþykki má draga til baka hvenær sem er.

Notaðu afskráningartengil í upplýsingapósti eða sendu ósk á hordur@heimkoma.app. Við svörum beiðnum almennt innan mánaðar. Ef framlenging er heimil samkvæmt lögum upplýsum við þig um ástæðu hennar. Við getum þurft viðeigandi staðfestingu á því hver leggur fram beiðni til að verja upplýsingar þínar.

Teljir þú að vinnsla samrýmist ekki persónuverndarlögum getur þú kvartað til Persónuverndar eða annars þar til bærs eftirlitsaðila. Þú þarft ekki að leita til okkar fyrst til að geta kvartað.

9. Öryggi og sjálfvirk flokkun

Við beitum ráðstöfunum til að takmarka aðgang að persónuupplýsingum og vernda þær gegn óheimilli notkun, breytingu eða tapi. Netnotkun er þó aldrei alveg áhættulaus. Láttu okkur vita ef þú telur að upplýsingar um þig hafi farið á rangan stað.

Áhugi sem þú skráir getur verið notaður til að flokka fyrirspurn, til dæmis eftir Reykjavík, stakri eign eða þriggja húsa samfélagi. Þetta auðveldar viðeigandi svör og eftirfylgni. Vefurinn tekur ekki sjálfvirkar ákvarðanir um kaup eða réttindi þín sem hafa réttaráhrif eða sambærileg veruleg áhrif á þig.

10. Breytingar á stefnunni

Við uppfærum stefnuna þegar þjónusta, vinnsla eða kröfur breytast. Nýjasta útgáfan er birt hér með dagsetningu. Ef breyting krefst nýrrar upplýsingagjafar eða samþykkis verður það gert áður en viðkomandi vinnsla hefst. Spurningar má alltaf senda á netfangið hér að ofan.