Svona virkar sameign hjá Heimkomu

Eigðu þinn stað í fríinu með öðrum. Þú velur eignarhlut í einu húsi, tveimur stökum húsum eða þriggja eigna samfélagi. Heimkoma sér um rekstur og viðhald svo þú getir notið tímans.

Eignarhald sem hentar þínu lífi

Þú kaupir eignarhlut í frístundaeign með öðrum, nýtir hana í samræmi við þinn hlut og deilir kostnaði. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón.

Stök eign er í boði núna í Húsafelli og á Akureyri. Þú getur keypt 1/8 hlut í öðru húsinu eða báðum. Hver hlutur veitir 6 vikur, eða 42 daga, á ári í viðkomandi húsi.

Í þriggja eigna samfélagi kaupir þú 1/12 hlut í þremur eignum. Honum fylgja samtals 12 vikur, eða 84 dagar, á ári þegar allar þrjár eignir hafa verið afhentar.

1/8 hlutur

Húsafell: 16 m.kr. Akureyri: 17 m.kr. Þú kaupir 1/8 hlut í því húsi sem hentar þér.

42 dagar

Með 1/8 hlut í stakri eign fylgja 6 vikur, eða 42 dagar, á ári í því húsi.

Tvær eignir

Þú getur keypt 1/8 hlut í bæði Húsafelli og á Akureyri fyrir samtals 33 m.kr. Þá færðu 6 vikur í hvoru húsi, samtals 84 daga á ári.

1/12 hlutur

Þriggja eigna samfélag kostar 33 m.kr. samtals. Þú eignast 1/12 hlut í þremur frístundaeignum.

84 dagar

Þriggja eigna samfélagi fylgja 12 vikur, eða 84 dagar, á ári samtals þegar allar eignir hafa verið afhentar: 4 vikur í hverju húsi.

Afhending

Húsafell og Akureyri eru afhent og tilbúin til notkunar. Þriðja húsið verður afhent vorið 2027.

Þú greiðir aðeins fyrir afhentar eignir. Síðasti þriðjungur kaupverðs greiðist við afhendingu þriðja hússins.

Ef þriðja húsið hentar þér ekki þegar það er kynnt getur þú fallið frá kaupunum og fengið endurgreiðslu samkvæmt skilmálum samnings. Við förum yfir fyrirkomulagið með þér áður en þú kaupir.

Reglur

Reglur sem tryggja jafnræði og gæði

Heimkoma er hönnuð til að tryggja sanngirni fyrir alla eigendur. Með skýrum reglum og bókunarkerfi er tryggt að allir njóti réttinda sinna. Nánar um reglur.

Bókanir

Bókaðu dvöl í kerfi Heimkomu

Þú bókar dvöl í kerfi Heimkomu með einföldum hætti. Þú getur skipulagt helgar, sumarfrí eða styttri dvöl með stuttum fyrirvara. Ef þú vilt breyta dagsetningum eða skiptast á dögum við aðra í samfélaginu, er það líka hægt – allt innan öruggs og skýrs kerfis.

Reglurnar eru skýrar
Reglurnar eru eigendum til verndar. Þær fjalla um bókanir, nýtingu, umgengni og skyldur Heimkomu.
Reglur gera þetta einfalt

Þetta er einfalt og gengur útá það að reglurnar eru skýrar og þekktar frá upphafi. Ekkert kemur á óvart.

Allar reglur eru fyrirliggjandi frá upphafi og eru skrifaðar til að hámarka réttláta notkun og eyða óvissu. Reglurnar voru skrifaðar í samvinnu við BBA//Fjeldco.

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa gæðastaðal

Allar frístundaeignir Heimkomu eru uppfærðar, staðlaðar og reknar samkvæmt skýrum gæðastaðli sem við köllum H-Klassa.

H-Klassi tryggir samræmd gæði, hágæða upplifun og áhyggjulausa notkun – óháð því hvaða eign er nýtt hverju sinni.

Heimkoma hannar almennt ekki húsin frá grunni, heldur velur eignir af kostgæfni og uppfærir þær til að uppfylla okkar kröfur.

Við vinnum eingöngu með fagaðilum á hverju sviði og notum viðurkennd og vönduð vörumerki sem standast kröfur okkar um gæði, endingu og notagildi.

Samræmdur gæðastaðall

Allar eignir Heimkomu fylgja sama H-klassa staðli. Það tryggir jafnt gæðastig, fagmennsku og upplifun í öllum eignum – óháð aldri, staðsetningu eða upprunalegri hönnun hússins.

Innréttingar og húsgögn

Eignir eru uppfærðar með vönduðum innréttingum og húsbúnaði frá leiðandi framleiðendum. Val á efnum, húsgögnum og lausnum miðast við mikla notkun, auðvelt viðhald og tímalaust útlit.

Nútíma þægindi og tækni

Allar eignir eru fullbúnar til notkunar allt árið og útbúnar nútímalegum lausnum þar sem við á – svo sem hraðvirku neti, öryggiskerfum og snjalllausnum. Allt er sett upp með notendavænni upplifun og einfaldri umsjón að leiðarljósi.

Heilsu- og slökunaraðstaða (þar sem við á)

Þar sem aðstæður leyfa eru eignir uppfærðar með heitum og köldum potti, gufubaði eða sambærilegri aðstöðu. Slík aðstaða er valin og sett upp af fagaðilum og hönnuð til notkunar allt árið.

Heimkoma sér um allt – þú nýtur frístundanna

Heimkoma sér um daglega umsýslu, rekstur og viðhald fyrir hönd eigenda. Þú deilir kostnaði með öðrum eigendum samkvæmt samningi og færð meiri tíma til að njóta frístundanna.

Heimkoma sér meðal annars um:
Allt utanumhald og daglegan rekstur

Heimkoma annast allan daglegan rekstur eignanna fyrir hönd eigenda. Þú þarft ekki að hafa yfirsýn yfir reikninga, samninga eða þjónustuaðila – allt er skipulagt, greitt og haldið utan um í einu kerfi.

Öll föst gjöld og rekstrarliði

Við höldum utan um opinber gjöld, tryggingar, rafmagn, hita, net og öryggiskerfi fyrir hönd eigenda. Eigendur deila rekstrarkostnaði samkvæmt samningi.

Reglubundið eftirlit og faglegt viðhald

Eignirnar eru yfirfarnar reglulega samkvæmt skilgreindum verkferlum. Það felur í sér meðal annars músavarnir, fúavernd, hreinlætisúttektir og almennt ástandseftirlit til að tryggja að eignirnar haldist í toppstandi til lengri tíma.

Fagþrif og að eignir séu alltaf tilbúnar til notkunar

Fagþrif fara fram reglulega og eftir þörfum. Markmiðið er að eignin sé alltaf hrein, snyrtileg og tilbúin þegar þú mætir – án þess að þú þurfir að hugsa um undirbúning.

Samræmd gæði og áhyggjulaus upplifun

Heimkoma tryggir að allar eignir uppfylli H-klassa gæðastaðal. Það þýðir samræmd gæði, góð aðstaða og fagleg umsjón, óháð því hvaða eign þú nýtir hverju sinni.

"Mér fannst alltaf sumarhús vera bara fyrir fólk með haug af peningum og tíma. En þegar ég sá hvernig þetta virkar sá ég loksins að þetta væri raunverulega mögulegt fyrir fjölskyldu eins og okkar.”

Viðmælandi í rannsókn - Fjölskyldufaðir í Hafnarfirði

Upplýsingar

Lesefni, bæklingar og greinar

Við höfum tekið saman fjölda greina um fjármögnun, sameign, þjónustu og allt sem viðkemur eignarhaldi frístundaeigna. Greinarnar hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun.

Lesa meira?

Hér á vefnum finnur þú nánari upplýsingar um eignarhald, bókanir og þjónustu. THIRDHOME stendur eigendum Heimkomu til boða sem vilja nýta það, bæði í stökum eignum og þriggja eigna samfélögum.

Póstlisti
Bættu þér á póstlista til að fá upplýsingar um nýjar eignir og ný samfélög.

Algengar spurningar - FAQ

Hér eru algengustu spurningarnar um málið. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu hvetjum við þig til að hafa samand.

Hvað fæ ég sem eigandi?

Í stakri eign kaupir þú 1/8 hlut með 6 vikum, eða 42 dögum, á ári. Þú getur keypt hlut í öðru húsinu eða báðum. Í þriggja eigna samfélagi kaupir þú 1/12 hlut í þremur eignum með samtals 12 vikum, eða 84 dögum, á ári þegar allar eignir hafa verið afhentar. Heimkoma sér um daglega umsjón og rekstur.

Þetta er ekki „time share“. Þú átt hluta í fasteign og getur selt hann hvenær sem er samkvæmt samningi.
Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu í kerfinu. Þó ekki þannig að fjöldi nýtingadaga minnki.
Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og allan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri eða viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og þau komu að henni. Eigendur geta valið að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.

Allar reglur um samfélagið eru skrifaðar með það í huga að vernda þá sem vilja skýrar reglur og fara eftir þeim. Ítrekuð og alvarleg brot á reglum geta leitt til alvarlegra afleiðinga.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.