Finndu þinn stað í fríinu

Veldu eignarhlut í Húsafelli, á Akureyri eða í þriggja eigna samfélagi. Þú getur líka keypt hlut í báðum stöku húsunum. Hér sérðu verðin, notkunina og næstu skref.

Eignir sem eru þegar í sölu

Húsafell og Akureyri eru tilbúin til notkunar. Stakir 1/8 eignarhlutir eru í sölu núna: Húsafell á 16 m.kr. og Akureyri á 17 m.kr., með 6 vikum eða 42 dögum á ári í hvorri eign.

Þú getur einnig valið þriggja eigna samfélag á 33 m.kr. samtals. Þar eignast þú 1/12 hlut í þremur eignum með 12 vikum eða 84 dögum á ári samtals þegar allar eignir hafa verið afhentar. Húsafell og Akureyri eru afhent; þriðja húsið verður afhent vorið 2027.

Húsið við Hafnarstræti 45 á Akureyri og veröndin
Úrvalseign á Akureyri
Akureyri, Ísland
KR 17.000.000
Sælureitur í Húsafelli
Húsafell, Ísland
KR 16.000.000

Svona ganga kaupin fyrir sig

Fáðu skýra leiðsögn um kaupin. Við tryggjum að ferlið verði einfalt og ánægjulegt.

1. Kynning og ráðgjöf með söluaðila (bókaðu fund eða símtal)

2. Undirritun samnings og greiðsla

3. Aðgangur að appi og bókunarkerfi

4. Bóka fyrstu ferð í þitt hús

Þegar kaup og afhending eru frágengin getur þú byrjað að nýta afhentar eignir samkvæmt bókunarreglum. Við förum með þér yfir samning, greiðslur og aðgang að kerfinu áður en þú tekur næsta skref.

Hvað kostar það?

Veldu einn stað, tvo ákveðna staði eða þriggja eigna samfélag. Húsafell kostar 16 m.kr., Akureyri 17 m.kr. og þriggja eigna samfélag 33 m.kr. samtals.

Valkostir Heimkomu

Vöruframboð Heimkomu v2 copy

Verð

Hér eru núverandi kaupverð eignarhluta í íslenskum krónum. Ef þú velur bæði stöku húsin er heildarverðið 33 m.kr. fyrir 1/8 hlut í hvoru húsi og samtals 12 vikur, eða 84 daga, á ári. Rekstrarkostnaður og önnur gjöld eru samkvæmt samningi.

Húsafell

Eignarhlutur í stakri eign
16 m.kr.
  • 1/8 eignarhlutur í Húsafelli
  • 6 vikur / 42 dagar á ári
  • Þú getur líka keypt hlut á Akureyri
  • Afhent og tilbúið til notkunar
  • Snjallstýring til að einfald aðgengi og rekstur
  • Þinn eigin afmarkaði öryggisskápur
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald
  • Sveigjanleg og réttlát bókun í fullkomnu kerfi Heimkomu

Akureyri

Eignarhlutur í stakri eign
17 m.kr.
  • 1/8 eignarhlutur á Akureyri
  • 6 vikur / 42 dagar á ári
  • Afhent og tilbúið til notkunar
  • Snjallstýring til að einfald aðgengi og rekstur
  • Þinn eigin afmarkaði öryggisskápur
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald
  • Sveigjanleg og réttlát bókun í fullkomnu kerfi Heimkomu
  • Þú getur líka keypt hlut í Húsafelli

Þriggja eigna samfélag

Þrír staðir. Sameiginlegt eignarhald.
33 m.kr. samtals
  • 1/12 eignarhlutur í þremur eignum
  • 12 vikur / 84 dagar á ári samtals þegar allar eignir eru afhentar
  • Húsafell og Akureyri tilbúin til notkunar
  • Þriðja húsið afhent vorið 2027
  • Greitt aðeins fyrir afhentar eignir
  • Síðasti þriðjungur greiddur við afhendingu þriðja hússins
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald
  • Bókanir samkvæmt reglum Heimkomu

Fjármögnun og lánsmöguleikar

Heimkoma býður ekki fjármögnun vegna kaupa og ráðleggur áhugasömum kaupendum að leita til síns viðskiptabanka.

Eigendur hluta hjá Heimkomu eru þinglýstir eigendur á hlut í fasteign, en ekki er heimilt að veðsetja þann hlut.

Ávallt er velkomið að leita ráða hjá okkur.

Greiðslur og afhending

Tvö hús núna. Þriðja húsið vorið 2027.

Í þriggja eigna samfélaginu getur þú þegar byrjað að nýta Húsafell og Akureyri. Þú greiðir aðeins fyrir eignir sem hafa verið afhentar. Heildarkaupverð er 33 m.kr.

Greitt í takt við afhendingu

Síðasti þriðjungur kaupverðs, 11 m.kr., greiðist þegar þriðja húsið er afhent vorið 2027. Greiðslur og afhending fara fram samkvæmt samningi.

Ef þriðja húsið hentar þér ekki

Ef þriðja húsið hentar þér ekki þegar það er kynnt getur þú fallið frá kaupunum og fengið endurgreiðslu samkvæmt skilmálum samnings. Við förum yfir fyrirkomulagið með þér áður en þú kaupir.

"Mér fannst alltaf sumarhús bara vera fyrir fólk með nóg af peningum og tíma. En þegar ég sá hvernig þetta virkar sá ég loksins að þetta væri raunverulega mögulegt fyrir fjölskyldu eins og okkar að eignast sumarhús.”

Viðmælandi í rannsókn - Fjölskyldufaðir í Hafnafirði

Algengar spurningar - FAQ

Hér eru svör við algengum spurningum. Hafðu samband ef þú vilt ræða hvaða leið hentar þér og fjölskyldunni þinni.

Hvað fæ ég sem eigandi?

Í stakri eign kaupir þú 1/8 hlut með 6 vikum, eða 42 dögum, á ári. Þú getur keypt hlut í öðru húsinu eða báðum. Í þriggja eigna samfélagi kaupir þú 1/12 hlut í þremur eignum með samtals 12 vikum, eða 84 dögum, á ári þegar allar eignir hafa verið afhentar. Heimkoma sér um daglega umsjón og rekstur.

Þetta er ekki „time share“. Þú átt hluta í fasteign og getur selt hann hvenær sem er samkvæmt samningi.
Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu í kerfinu. Þó ekki þannig að fjöldi nýtingadaga minnki.
Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og allan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri eða viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og þau komu að henni. Eigendur geta valið að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.
Allar bókanir fara í gegnum bókunarkerfi Heimkomu. Kerfið er sett upp samkvæmt bókunarreglum og tekur mið af notkun hvers eiganda.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.