Hvað er Heimkoma?

Hvað er Heimkoma

Ný leið til að eiga og njóta frístundaeigna á Íslandi

Hvað ef eignarhald á frístundaeign væri einfaldara?

Við hjá Heimkomu spurðum okkur snemma einfaldra spurninga. Af hverju þarf eignarhald á frístundaeign að vera svona flókið? Af hverju eru kostnaður, viðhald og ábyrgð oft stærri hluti upplifunarinnar en notkunin sjálf? Og af hverju standa svo margar frístundaeignir ónýttar stóran hluta ársins?

Úr þessum spurningum varð Heimkoma til. Ekki sem hefðbundið fasteignaverkefni, heldur sem nýtt eignarform sem byggir á betri nýtingu, skýru fyrirkomulagi og raunverulegu frelsi fyrir eigendur.

Sameign sem byggir á skýru og sanngjörnu fyrirkomulagi

Kjarni Heimkomu er sameign í samfélögum. Samfélag hjá Heimkomu er hópur eigenda sem eiga saman eina eða fleiri frístundaeignir, með skýrt skilgreindan notkunarrétt og sameiginlega ábyrgð. Þegar samfélagið byggir á einni eign geta eigendurnir t.d. verið átta og hver eigandi hefur þá 6 vikur í sínu húsi yfir árið. Þegar samfélagið byggir á þremur frístundaeignum eru eigendurnir 12 og deila þeir aðgangi að þremur mismunandi húsum, með jafnræði og skýru skipulagi að leiðarljósi. Hver eigandi á þá 12 vikur alls sem dreifast jafnt á húsin. Í báðum tilvikum gengur sameignin út á að lækka fjárfestingu og rekstrarkostnað á hvern eiganda, án þess að fórna gæðum eða upplifun. Þetta er ekki lausleg samvinna eða óformlegt samstarf, heldur skilgreint eignarhald með skýrum réttindum og reglum. Fyrsta verkefni Heimkomu byggir á samfélagi með þremur frístundaeignum og tólf eigendum.

Til að skilja þetta nánar skiptir máli að kynna sér Sameignarform Heimkomu – hvernig það virkar í reynd, þar sem uppbygging samfélagsins, réttindi eigenda og notkun eru útskýrð skref fyrir skref.

Ný leið sem sameinar kosti – án helstu ókosta

Hingað til hafa valkostirnir í frístundadvöl á Íslandi verið nokkuð takmarkaðir. 

  1. Leiga í gegnum stéttarfélög hefur verið hagkvæm, en oft einkennst af takmörkuðum gæðum, litlu framboði og litlum fyrirsjáanleika, sérstaklega á vinsælum tímum. 
  2. Skammtímaleiga á almennum markaði, til dæmis í gegnum Airbnb, hefur boðið upp á meira framboð, en á kostnað stöðugleika – með háu verði vegna samkeppni við ferðamenn, óvissu um gæði og litlum tengslum við eignina sjálfa.
  3. Að eiga frístundahús sjálfur hefur eigandi aftur á móti fullt aðgengi og stjórn, en krefst jafnframt mikillar fjárfestingar, hás rekstrarkostnaðar og verulegrar ábyrgðar sem fylgir eignarhaldi til lengri tíma.

Heimkoma verður til á milli þessara leiða. Hún sameinar kosti þeirra – gæði, fyrirsjáanleika og raunverulegt aðgengi – en dregur markvisst úr ókostunum. Í stað þess að velja á milli óvissu leigu eða allsherjar ábyrgðar spyrjum við hvort fólk vilji eiga hlut í vönduðum frístundaeignum, með skýrum réttindum og einföldu utanumhaldi. 

Fyrir marga verður munurinn skýr þegar þeir skoða Að eiga einn eða eiga í sameign – hvað hentar þér betur?, þar sem þessi eignarform eru borin saman út frá raunverulegri notkun og ábyrgð.

Við sjáum um allt sem fylgir eigninni

Einn stærsti munurinn á Heimkomu og hefðbundnu eignarhaldi er umsýslan. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri, viðhaldi eða óvæntum verkefnum. Allt slíkt er hluti af fyrirkomulaginu frá fyrsta degi.

Þetta þýðir að eigendur geta einbeitt sér að notkuninni sjálfri og notið þess að að vera saman.

Nánar hér: Heimkoma sér um allt – hvað þýðir það í raun?

Eignarhald sem styður lífsstílinn

Heimkoma er fyrir fólk sem vill eiga frístundaeign, en á sínum forsendum. Fyrir fjölskyldur sem meta tíma, gæði og einfaldleika. Fyrir þá sem vilja njóta frítímans án þess að eignin verði stöðugt verkefni sem bíður.

Við trúum því að framtíð eignarhalds snúist ekki um að eiga meira, heldur að eiga betur – með skýrari ramma, betri nýtingu og meiri ró.

Þetta er aðeins byrjunin.

Skoðaðu nýjustu greinar okkar

Vertu á tánum með gagnlegum greinum og innsýn frá teyminu okkar.

Við bjóðum þér að bóka stutt símtal og fá Heimkomu útskýrða út frá þínum aðstæðum.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.