Fyrsta eign Heimkomu í Húsafelli
Við erum stolt af því að segja frá því að Heimkoma hefur keypt sitt fyrsta frístundahús. Þetta er stór og persónulegur áfangi fyrir okkur og markar upphaf fyrsta samfélags Heimkomu. Húsið er staðsett í Húsafelli, í einstaklega fallegu umhverfi þar sem náttúra, kyrrð og aðgengi fara saman á einstakan hátt.
Húsið er rúmgott, bjart og afar vel skipulagt. Það er á tveimur hæðum og hentar vel bæði fjölskyldum og vinahópum. Í aðalhúsinu er gistipláss fyrir átta manns og í gestahúsi fyrir tvo til viðbótar, alls því pláss fyrir tíu manns. Í húsinu er bæði sauna og heitur pottur, auk þess sem stór pallur liggur í kringum húsið og tengir saman inni- og útirými á fallegan hátt.
Vandaðar uppfærslur og framtíðarsýn Heimkomu
Þegar við keyptum húsið var það í mjög góðu ástandi. Einmitt þess vegna ákváðum við að fara ekki í róttækar breytingar, heldur vandaðar uppfærslur. Um er að ræða fagurfræðilegar lagfæringar, endurnýjun og uppfærslu þar sem markmiðið er skýrt: allt á að líta út eins og nýtt, án þess að missa sál eða karakter eignarinnar. Húsið verður stílfært í heild sinni, öll húsgögn uppfærð í samvinnu við TEKK og valin með samræmi, gæði og notagildi í huga.
Við ætlum einnig að bæta við köldum potti og gera eignina að sannkölluðum unaðarreit þar sem andstæður heits og kalds, inni og úti, kyrrðar og náttúru mætast. Þetta er hluti af þeirri heildarupplifun sem við viljum að Heimkoma standi fyrir.
Með þessari færslu birtum við myndir af húsinu eins og það leit út við kaupin. Á næstu vikum munum við síðan deila myndum af þeim framkvæmdum og uppfærslum sem við erum að fara í, þannig að hægt verði að fylgjast með ferðalaginu frá upphafi til enda – eða þangað til þú kaupir þig inní sameign hjá Heimkomu 🙂
Þetta hús er fyrsta eignin í fyrsta samfélagi Heimkomu sem verður sett í sölu á næstunni. Samhliða þessu getum við einnig sagt frá því að við höfum þegar fundið hús sem okkur langar í á Akureyri, þar sem við stefnum á að kaupa hús númer tvö. Við munum greina frá því fljótlega og birta myndir hér þegar þar að kemur.
Fyrsta húsið í Húsafelli er upphafið. Fyrsta samfélagið. Fyrstu skrefin í því að gera sameign að vönduðum, raunhæfum og aðgengilegum valkosti fyrir fleiri.






