Nú geturðu tekið við fyrsta Heimkomu-húsinu
Heimkoma er farin að afhenda fyrstu húsin til eigenda.
Það þýðir að nú er hægt að ganga inn í fyrsta samfélag Heimkomu, byrja að bóka dagana sína og njóta fyrsta hússins strax.
En hvernig virkar afhendingin og greiðsluferlið?
Við höfum hannað allt ferlið með eitt markmið í huga:
traust og öryggi fyrir eigendur.
Afhending húsanna
Fyrsta samfélag Heimkomu samanstendur af þremur húsum.
Afhending þeirra fer fram í þremur skrefum.
Hús 1
Er þegar tilbúið og eigendur geta tekið við því og byrjað að nota það strax.
Hús 2
Verður afhent í byrjun júní eftir að Heimkoma hefur lokið uppfærslu og innréttingum.
Hús 3
Verður síðan keypt og afhent eigendum í haust.
Samfélagið byggist þannig upp skref fyrir skref eftir því sem húsunum er bætt við.
Þú greiðir við afhendingu hvers húss
Greiðslurnar fylgja einfaldri reglu.
Þú greiðir aðeins fyrir þau hús sem hafa verið afhent.
Ef þú gengur inn í samfélagið núna greiðir þú í raun einungis fyrir hús 1, þar sem það er þegar tilbúið til afhendingar.
Þegar:
- hús 2 er afhent í júní, greiðir þú þann hluta
- hús 3 er afhent í haust, greiðir þú síðasta hlutann
Áætlað verð fyrir hlut í samfélaginu er 33–36 milljónir króna, sem gefur aðgang að þremur frístundaeignum og 12 vikum á ári.
Fjármunir fara í vörslureikning hjá Arion Banka
Til að tryggja öryggi eigenda fara greiðslur aldrei beint til Heimkomu.
Allir fjármunir fara inn á vörslureikning hjá Arion Banka.
Þar eru þeir geymdir þar til lánið sem notað var til að kaupa húsið hefur verið að fullu greitt upp.
Þetta þýðir að fjármunirnir eru í vörslu bankans þar til húsið sem þú ert að kaupa hlut í er orðið skuldlaust.
Öll hús í Heimkomu verða þannig skuldlaus þegar samfélagið er fullfjármagnað.
Þú getur tekið þátt áður en þriðja húsið er keypt
Í dag er hægt að sjá:
- hús 1, sem þegar er komið í notkun
- hús 2, sem verður afhent í byrjun júní
Það er því hægt að taka þátt í samfélaginu þó að þriðja húsið hafi ekki verið keypt enn.
Þegar þriðja húsið verður kynnt fá eigendur 30 daga til að ákveða sig.
Ef einhver ákveður þá að hætta við þátttöku fær hann fjármuni sína endurgreidda af vörslureikningi Arion Banka.
Ef þú hefur nýtt þér húsin
Ef eigandi hefur þegar dvalið í húsunum sem eru í notkun er aðeins dreginn frá raunverulegur kostnaður við dvölina.
Sá kostnaður er:
200 evrur á nótt
fyrir þær nætur sem viðkomandi hefur nýtt sér í húsunum sem eru í notkun.
Það jafngildir um 25% af markaðsleigu húsanna.
Svona virkar ferlið
- Þú ákveður að kaupa hlut í samfélaginu
- Greiðsla fer á vörslureikning hjá Arion Banka
- Hús eru afhent eftir því sem samfélagið byggist upp
- Þú byrjar að bóka dagana þína og njóta húsanna
Á meðan eru fjármunir þínir í vörslu bankans þar til húsin eru skuldlaus.
Nú er hægt að taka þátt
Nú þegar fyrsta húsið er komið í notkun og annað húsið er á leiðinni í afhendingu er Heimkoma farin að taka á móti nýjum eigendum.
Þeir sem koma snemma inn í samfélagið hafa líka mestu möguleikana þegar kemur að bókun dvalar, sérstaklega fyrir sumarið.
Viltu kynna þér Heimkomu?
Ef þú hefur áhuga á að verða eigandi í fyrsta Heimkomu-samfélaginu geturðu kynnt þér verkefnið betur hér






