Ef þú ert með spurningar, eða vilt taka næsta skref er best að hafa samband eða bóka fund. Við svörum öllum þínum spurningum í síma, með tölvupósti eða á fundi - þitt er valið.
M-F 9:00 til 17:00
Svefnherbergi
Baðherbergi
Gisti aðstaða
Stærð
Þetta fallega og mikið endurnýjaða einbýlishús á þremur hæðum sameinar lúxus, rými og notalega heimilisstemningu á frábærum stað á Akureyri. Húsið er rúmgott (216 m²) og hentar vel fyrir fjölskyldur og vinahópa með góðu skipulagi og mörgum svefnrýmum.
Miðhæðin er hjartað í húsinu – opið og bjart rými með eldhúsi, borðstofu og stofu þar sem stórir gluggar ramma inn fallegt útsýni yfir Pollinn og í Vaðlaheiði. Arinn skapar hlýja stemningu og útgengt er á rúmgóða verönd með heitum og köldum potti sem nýtist allt árið.
Efri hæðin býður upp á þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Neðsta hæðin bætir við sveigjanleika með skemmtilegu leiksvæði, góðu geymslurými, einu svefnherbergi og baðherbergi.
Staðsetningin er einstök – örstutt í miðbæ Akureyrar en samt í rólegu umhverfi. Þetta er kjörið hús til að njóta alls þess sem Akureyri og Norðurland hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru skíðaferðir, gönguferðir, golfferðir eða einfaldlega góðir dagar í fallegu veðri.
Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa ⓘ.
Við erum til taks til að svara öllum spurningum sem þú kannt að hafa um Heimkomu, um þetta hús, þetta samfélag, eða aðrar útfærslur. Ekki hika við að hafa samband eða bóka fund.
Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband.
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.