TEKJUDAGAR – einfalt og öruggt í gegnum Heimkomu
HEIMKOMU samfélagið er fyrst og fremst hugsað fyrir eigendur. En ef þú sérð fram á að nýta ekki alla dagana þína getur Heimkoma leigt þá út fyrir þig. Með einföldu og öruggu kerfi sér Heimkoma um allt ferlið – og þú fylgist með í appinu.
Af hverju getur fólk ekki leigt út sjálft?
Heimkoma sameinar 12 fjölskyldur sem saman eiga þrjár vel staðsettar lúxuseignir. Þú færð 12 vikur á ári og aðgang að sveigjanlegu, þægilegu og vesenlausu fríi.
Samræmt kerfi með reglum
Ákveðnir dagar
Virkni
Þú ákveður þig – Heimkoma sér um rest
Sem eigandi velur þú árlega hvort og hversu marga daga þú vilt leigja – 0%, 25%, 50% eða 75% (ath. skattreglur takmarka möguleika að vissu leiti)
Heimkoma sér síðan alfarið um að auglýsa eignirnar, taka á móti bókunum, sjá um þrif og afgreiða gesti.
Tekjurnar fara fyrst í rekstur, síðan niður greiðslur á lánum, og ef afgangur er, eru þær greiddar út til þess eiganda sem lætur sína dag.
Þú ákveður þig – Heimkoma sér um rest
Við auglýsum og bókum. Heimkomu kerfið er samtengt útleigu síðum.
Gestir geta bara pantað með 6 mánaða fyrirvara (eigendr allt að 24 mánaða)
Gestir eru vottaðir, fá skýra fyrirmæli og aðgang í gegnum kerfi Heimkomu
Aldrei er leigt meira af þeim dögum sem eru til útleigu af eigendum en 70%
Eftir hverja útleigu eru fagþrif
Nýting og tekjur eru sýnileg á vef svæði eigenda
Markmið útleigu er alltaf að hámarka tekjur, ekki nýtingu
Eykur þetta áhuga þinn? Eða er þetta enn óskýrt?
Hafðu samband ef þú ert með spurningar.



