Annað húsið komið – Heimkoma á Akureyri
Það er alltaf sérstök tilfinning þegar nýtt hús bætist í Heimkomu.
Núna getum við loksins sagt frá því að annað húsið í fyrsta þriggja húsa samfélagi Heimkomu er komið í safnið.
Húsið stendur við Hafnarstræti á Akureyri, örstutt frá miðbænum en samt á rólegum og fallegum stað. Héðan er frábært útsýni yfir Pollinn og fjöllin í kring, sem gerir staðsetninguna bæði einstaka og mjög eftirsótta.
Við höfðum fylgst með þessu húsi í nokkurn tíma. Þegar tækifærið loksins kom vissum við að þetta væri fullkomin viðbót við fyrsta samfélag Heimkomu.
Fallegt einbýlishús með einstöku útsýni
Húsið er rúmlega 200 fermetra einbýlishús sem rúmar allt að 10 gesti með góðu móti.
Helstu atriði hússins eru meðal annars:
- um 216 fermetrar
- 5 svefnherbergi
- 3 baðherbergi
- verönd og svalir
- heitur pottur og sauna
- bílastæði við húsið
- einstakt útsýni yfir Pollinn
Húsið er byggt árið 1923 en hefur verið mikið endurnýjað á smekklegan hátt síðustu ár. Það sameinar þannig sjarma eldri húss við nútímalega aðstöðu og góða nýtingu rýmis.
Staðsetningin
Einn stærsti kostur hússins er staðsetningin.
Það er stutt í miðbæ Akureyrar, veitingastaði, menningu og allt það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Á sama tíma er húsið á stað þar sem ríkir ró og fallegt útsýni.Hér fyrir neðan má sjá nákvæma staðsetningu hússins á korti.
Heimkoma setur sitt mark á húsið
Við tökum við húsinu í byrjun júní.
Þá fer Heimkoma í lokaáfanga uppsetningar þar sem húsið verður:
- innréttað í anda Heimkomu
- búið nýjum húsgögnum
- með nýjum heimilistækjum
- með sambærilegum búnaði og í hinum Heimkomu-húsunum
Markmiðið er að þegar eigendur komi í hús Heimkomu — hvort sem það er á Akureyri, í Húsafelli eða annars staðar — þá líði þeim alltaf eins og að þeir séu að koma heim.
Hluti af fyrsta Heimkomu-samfélaginu
Þetta hús er annað húsið í fyrsta þriggja húsa samfélagi Heimkomu.
Í slíku samfélagi:
- 12 eigendur eiga saman 3 hús
- hver eigandi fær 12 vikur á ári
- eigendur eru skráðir á afsal og eiga raunverulegan hlut í fasteignunum
Heimkoma sér síðan um rekstur, viðhald og alla þjónustu.
Afhending húsanna
Við erum þegar farin að afhenda fyrsta húsið til eigenda.
- Hús 1 – þegar komið í notkun
- Hús 2 (Akureyri) – afhent í byrjun júní
- Hús 3 – verður afhent í haust
Eigendur greiða aðeins fyrir þau hús sem hafa verið afhent. Þegar ný hús bætast við samfélagið kemur sá hluti fjárfestingarinnar til greiðslu.
Við munum fara ítarlega yfir hvernig kaupferlið og afhending hvers húss virkar í næstu færslu hér á síðunni.
Myndir af húsinu
Hér fyrir neðan má sjá fyrstu myndir af húsinu að utan og umhverfi þess.
Innanhúss verður húsið uppfært og innréttað af Heimkomu í byrjun júní og við munum sýna þær myndir síðar.




























Viltu fylgjast með?
Það er nú þegar mögulegt að verða eigandi í fyrsta samfélagi Heimkomu.
Við segjum nánar frá því í næstu færslum hvernig eignarhald, kaupferlið og afhending húsanna virkar.






