Algengar spurningar
Hvernig virkar Heimkoma
Heimkoma gerir þér kleift að njóta eignarinnar án þess að bera alla daglega ábyrgð. Við tökum að okkur rekstur, umsýslu og viðhald, svo þú getur slakað á. Ferlið er einfalt, gagnsætt og hannað með þínar þarfir í huga. Þú heldur áfram að njóta hússins á meðan við sjáum um restina.
Hvað fæ ég sem eigandi?
Þú eignast hlut í einni eða fleiri fasteignum með öðrum eigendum og færð daga til afnota í samræmi við eignarhlut og fjölda eigna. Þú færð líka áhyggjuleysi vegna umsjónar og reksturs Heimkomu á þinni eign.
Er þetta "time share" eða leiga?
Þetta er ekki „time share“. Þú átt hluta í fasteign og getur selt hann hvenær sem er samkvæmt samningi.
Getur Heimkoma breytt reglum?
Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu í kerfinu. Þó ekki þannig að fjöldi nýtingadaga minnki.
Hver sér um daglegan rekstur?
Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og allan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri eða viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og þau komu að henni. Eigendur geta valið að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.
Hvernig virkar bókunarkerfið?
Hvað gerist ef eigendur brjóta reglur?
Allar bókanir fara í gegnum bókunarkerfi Heimkomu. Kerfið er sett upp samkvæmt bókunarreglum og tekur mið af notkun hvers eiganda.
Hvað ef ég vil skipta um samfélag?
Er Heimkoma sjálf með hlut í eigninni?
Hvernig virka bókanir?
Kerfið okkar er til sýningar fyrir áhuga saman. Bókaðu fund og við sýnum þér kerfið.
Kaup og fjármögnun
Hvernig virkar fjármögnunin?
Því miður getur Heimkoma ekki fjármagnað fyrir þig. Við mælum með að skoða að færa úr öðrum fjárfestingum (þar sem þetta er fjárfesting), bæta við láni á aðra fasteign sem þú átt eða bíð með þetta þar til þú ert tilbúin/n.
Hver er lágmarksinnborgun?
Það er 100%.
Sem þó er ekki „nema“ 30 milljónir miðað við að húsin í því samfélagi sem þú ert að skoða kosti alls um 360 milljónir, s.s. um 120 milljónir hvert hús.
Má veðsetja hlutinn minn?
Hvað ef ég get ekki greitt gjöld?
Get ég keypt fleiri hluti?
Get ég selt hlutinn hvenær sem er?
Hvernig er verð hlutanna ákvarðað?
Hvað taka kaup á hlut langan tíma?
Er hægt að fjármagna með eigin banka?
Eru öll gjöld sýnd fyrirfram?
Get ég sett kaupin í félag?
Get ég skoðað húsið áður en ég kaupi?
Fjölbreytni og sveigjanleiki
Aðal kosturinn er að þurfa ekki alltaf að fara á sama staðinn.
Það er gaman í Reykjaskógi, en það er ekki bara gaman í Reykjaskógi 🙂
Hjá Heimkomu getur þú selt, skipt, leigt eða bara notið þess sem þú átt. Allt kerfið er sett upp með sveigjanleika í huga til þess að auka fjölbreytileika.
Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti
Rekstur og ábyrgð
Við sjáum um allan daglegan rekstur eignarinnar þinnar.
Þar með talin er umsýsla, bókanir og samskipti við gesti eða eigendur.
Við tryggjum að viðhald sé sinnt og að eignin sé í toppástandi.
Þú getur treyst því að ábyrgðin sé í öruggum höndum.
Hver sér um viðhald?
Má ég hafa áhrif á innréttingar eða útlit?
Getum við bætt við eignina?
Hvað ef tjón verður á eign?
Hvað felst í rekstrargjöldunum?
Rekstrargjöld standa undir viðhaldi, tryggingum og rekstri. Hluti fer í sameiginlegan hússjóð sem safnast upp og er eign eigenda. Hússjóður dekkar stærri viðgerðir, uppfærslur og ef það verður tjón.
Hvar er rekstrarsjóðurinn geymdur?
Hversu oft eru húsin þrifin?
Er trygging innifalin í gjöldum?
Hvað gerist ef stórkostlegt tjón verður?
Get ég óskað eftir viðbótarþrifum?
Want to see how booking works?
We offer a demo – simple and transparent.
Notkun og skipulag daga
Hvernig er dögum skipt milli eigenda?
Dagafjöldi veltur á fjölda eigna og fjölda eignahluta sem þú átt. Í þriggja húsa samfélögum tryggir einn eignarhlutur (af 12) þér 12 vikur, eða 84 daga á ári með jafnri dreifingu milli há- og lágannar og milli húsa.
Hversu langt fram í tímann get ég bókað?
Þú getur bókað allt að 24 mánuði fram í tímann samkvæmt bókunarreglum. Almennt er gert ráð fyrir að verið sé að bóka næstu 12 mánuði. Hægt er að bóka eina hátíðarbókun allt að 24 mánuði fram í tímann.
Má ég skipta dögum við aðra?
Get ég geymt ónotaða daga milli ára?
Hvað ef margir vilja bóka sama tíma?
Má ég bjóða gestum að vera með mér?
Já, gestir eru leyfðir ef þú ert á staðnum og fylgja húsreglum.
Get ég fengið fleiri daga?
Hvað gerist ef ég missi af bókunar opnun?
Get ég lánað hús til fjölskyldu?
Hvernig virkar skiptikerfi?
Þú setur inn fyrirspurn og ef aðrir eigendur vilja skipta fara skiptin fram.
Get ég lengt dvöl ef enginn er bókaður?
Hvað ef ég kemst ekki í bókaða dvöl?
Má ég framselja bókaða daga?
Getur Heimkoma innleyst hlut ef ég brýt reglur?
Hver ákveður reglur um notkun?
Eru dýr leyfð?
Flexibility is Built-In
Leiga og tekjur
Má ég leigja út mína daga?
Hvernig skiptast leigutekjur?
Má leigja út allar eignir?
Hvernig fæ ég leigutekjurnar greiddar?
Hvað ef leigutaki veldur tjóni?
Get ég notað þriðja aðila til útleigu?
Hvaða þjónustur notar Heimkoma til útleigu?
Hvernig er leiguverð ákvarðað?
Fæ ég greiðsluyfirlit?
Get ég breytt útleiguhlutfalli mínu?
Hvaða skatta þarf að greiða?
Fyrir eigendur sem vilja selja
Hvernig sel ég hlutinn minn?
Hvað ef hlutinn selst ekki?
Get ég selt hlutinn hvenær sem er?
Hvernig ákvarðast markaðsvirði?
Má ég selja beint án Heimkomu?
Hversu lengi tekur sala yfirleitt?
Hvað kostar að nota Heimkomu við sölu?
Get ég sett lágmarksverð á hlutinn minn?
Má nýr eigandi breyta hlutfalli daga?
Hver sér um lögfræðilega vinnu við sölu?
Hvað ef markaðsvirði fellur?
Want to see how booking works?
We offer a demo – simple and transparent.
Sleppt og haldið
Hvað er „Sleppt og haldið“?
Þetta er þjónusta fyrir eigendur orlofseigna sem vilja selja hluta í húsinu sínu innan Heimkomu og lækka þannig skuldbindingar og kostnað, en halda áfram að njóta hússins án þess að þurfa að sjá um viðhald eða umsýslu.
Þarf Heimkoma að kaupa húsið mitt?
Nei. Þú heldur eigninni áfram, en Heimkoma tekur húsið inn í sitt kerfi, setur það upp sem sameign með 8 eigendum og sér um sölu á hlutum og alla umsýslu.
Hve margar vikur fæ ég til notkunar?
Seljandi getur haldið allt að 4 af 8 hlutum. Hver hlutur veitir 6 vikur á ári – 3 vikur á háannatíma (sumar og helgar) og 3 vikur á lágtímabili. Heimkoma á 2 vikur, og 2 vikur eru fráteknar fyrir viðhald.
Hvað gerist ef hlutirnir mínir seljast ekki?
Sala stendur yfir í 12 mánuði. Ef ekki hefur selst að minnsta kosti helmingur hluta (4) getur þú dregið húsið úr kerfinu án skuldbindinga. Heimkoma kaupir ekki óseldar einingar en getur áfram sinnt sölu eftir samkomulagi.
Hver ber kostnað meðan á sölu stendur?
Seljandi greiðir allan rekstrarkostnað (viðhald, tryggingar, fasteignagjöld) þar til hlutir hafa selst. Nýir eigendur taka þátt í kostnaði frá afhendingardegi.
Hvað kostar þetta fyrir mig sem seljanda?
Heimkoma tekur 4% eignarhlut sem þjónustuþóknun. Uppfærslukostnaður og rekstrarkostnaður á meðan sala stendur eru á þína ábyrgð, nema annað sé sérstaklega samið.
Hver sér um uppfærslu hússins?
Heimkoma stýrir og framkvæmir allar nauðsynlegar uppfærslur til að húsið uppfylli H-klassa gæðastaðal. Ef sala mistekst, ber seljandi kostnað af uppfærslu, en nýtur þeirra góðu kjara sem Heimkoma hefur.
Get ég keypt aftur fleiri hluti síðar?
Hvað þarf ég sjálfur að gera í ferlinu?
Hvers vegna ætti ég að velja þessa lausn?
Hversu fljótt get ég byrjað að selja hluta?
Hvað græði ég fjárhagslega á þessu?
Með því að selja hluta losar þú um eigið fé sem annars er bundið í húsinu og lækkar mánaðarleg útgjöld þín. Þú heldur áfram að njóta hússins en með lægri kostnaði og án umsjónar.
Hvað ef ég vil selja alla hlutina og halda engu eftir?
Það er hægt – þá sér Heimkoma um að selja allt húsið í hlutum og þú færð greitt fyrir allan eignarhlutinn. Þú getur jafnvel keypt hluta aftur síðar ef þú vilt halda aðgangi.
Hvernig er tryggt að húsið sé í toppstandi?
Heimkoma sér um reglulegt viðhald, þrif og gæðaskoðanir. Húsið uppfyllir H-klassa staðal og er í umsjón fagfólks allt árið.
Af hverju ætti ég að velja Heimkomu fram yfir aðra lausn?
Heimkoma hentar ef þú vilt halda minni eignarhluta og losna við vesenið og kostnaðinn af rekstri. Heimkoma sér um allt ferlið – uppfærslu, sölu, markaðssetningu, viðhald og bókanir – þannig að þú þarft ekki að sjá um neitt. Þú færð fjárhagslegt svigrúm, heldur aðgangi að húsið og sleppir veseninu.



