H-klassi

Samræmd gæði, vandaður húsbúnaður og fagleg umsjón.

Hvað er H-KLASSI hjá Heimkomu?

H-KLASSI er skilgreining á þeim gæðum sem þú getur alltaf gert ráð fyrir í eignum Heimkomu. Húsin eru ekki eins, en upplifunin er sambærileg. Í húsum Heimkomu sameinast vönduð hönnun, vel valin vörumerki og aðstaða sem gerir dvölina einfaldari, þægilegri og áhyggjulausa.

Vörumerki í húsinu

Fullbúið hús

Áhyggjulaus upplifun með vel völdum búnaði, fjölskylduvænni aðstöðu og rekstri sem er alfarið í höndum Heimkomu.

Samræmd gæði í hverju einasta rými

Hjá Heimkomu er markmiðið að allt sem skiptir máli sé til staðar þegar þú mætir. H-Klasi snýst ekki bara um búnað eða vörumerki heldur um samræmda upplifun, fallegt umhverfi og hús sem er tilbúið til notkunar frá fyrstu mínútu.

Það sem er innifalið í H-Klassa

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir helstu atriði sem skilgreina upplifunina í Húsafelli.

Eldhús og búnaður

Eldhúsið er fullbúið með völdum tækjum og búnaði sem styður bæði hversdagslega notkun og lengri dvöl, og hvort sem eldað er fyrir stóra eða litla hópa.

  • Ninja Airfryer
  • Napoleon grill
  • SMEG brauðrist, ketill og blender
  • SMEG hnífasett
  • Fullt sett af pottum, pönnum og eldhúsáhöldum
  • Diskar, glös og allur borðbúnaður
  • Kaffi, te, krydd, olíur og helstu nauðsynjar

Stofa og afþreying

Stofan er hönnuð með þægindi, einfaldleika og samveru í huga, með búnaði sem hentar bæði rólegum kvöldum og fjölskyldutíma.
  • Samsung Frame sjónvarp
  • Sonos hljóðkerfi
  • PlayStation 5 leikjatölva
  • Hraðvirkt Wi-Fi
  • Húsgögn frá TEKK
  • Spilastokkar og borðspil til afþreyingar

Vinnuaðstaða og tengingar

Aðstaða sem styður bæði vinnu og sveigjanleika fyrir þá sem vilja geta unnið eða tengst fundum í rólegu umhverfi.

  • Vinnuaðstaða með stórum skjá
  • Stöðug nettenging
  • Einföld og þægileg uppsetning

Bað og vellíðan

Áherslan er á hreina, einfalda og vandaða upplifun sem styður við gæðastaðal Heimkomu.

  • Sápur og vörur frá Sóley Organic
  • Vönduð baðaðstaða
  • Eigendur koma með eigin rúmföt og handklæði (eða nýta sér LÍN þjónustu Heimkomu).

Útisvæði og vellíðan

Aðstaðan nýtir sér staðsetninguna í Húsafelli og styður við afslöppun og útiveru allt árið.

  • Heitur pottur (og kaldur pottur á völdum stöðum)
  • Sauna
  • Útisvæði með húsgögnum
  • Grillaðstaða

Aðgengi og einföld notkun

Heimkoma notar mismunandi aðgangskerfi eftir eignum, en markmiðið er alltaf öruggt og skýrt aðgengi.

  • Snjalllásar í sumum húsum
  • Lockbox í öðrum
  • Samræmdar leiðbeiningar í öllum eignum

Þrif og umgengni

  • Skýr ábyrgð og fagleg umgjörð tryggja að húsið sé alltaf tilbúið fyrir næsta notanda.
  • Heimkoma sér um fagþrif að minnsta kosti einu sinni í mánuði
  • Reglulegt eftirlit og viðhald
  • Dyson ryksuga til staðar
  • Allar nauðsynlegar þrifvörur, bæði áhöld og efni

Eigendur bera ábyrgð á að:

  • Skila húsinu hreinu og tilbúnu fyrir næsta notanda
  • Fylgja gátlista Heimkomu við brottför

Fjölskylduvæn aðstaða

Húsið er hannað fyrir fjölbreytta notkun og hentar bæði fjölskyldum og vinahópum.

  • Barnarúm eða vagga til staðar
  • Afþreying sem hentar bæði börnum og fullorðnum
  • Rými fyrir samveru og rólega dvöl
  • Alltaf eru áhugaverðir útivistamöguleikar í grennd

 

Hvert hús er með læst geymslurými (skáp) fyrir hvern eiganda.

Rekstur sem þú þarft ekki að hugsa um

Heimkoma sér um utanumhald, þjónustu og viðhald svo upplifunin geti verið eins einföld og hún á að vera.

  • Allt viðhald og eftirlit
  • Þrif, utanumhald og þjónusta
  • Öryggiskerfi og rekstur

H-Klasi í einni setningu

Fullbúið hús með samræmdum gæðum, völdum vörumerkjum og rekstri sem er alfarið í höndum Heimkomu.
Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.