Þróunarmynd af Heklureit við Laugaveg; sýnir ekki íbúð 405 sérstaklega
Forsíða/Eignirnar/Reykjavík
Laugavegur 170 · Íbúð 405 · 4. hæð

Þinn staður
í Reykjavík.

Fullbúin íbúð fyrir fjóra á Heklureit, með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og einkastæði með rafhleðslu.

Þróunarmynd frá Heklureit · Til viðmiðunar.

Heima í borginni

Komdu í bæinn.
Komdu heim.

4Gistiaðstaða
2Svefnherbergi
2Baðherbergi
90,2 m²Með geymslu

Íbúð 405 er á fjórðu hæð við Laugaveg 170. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými með útgengi á 11,4 m² svalir til norðurs.

Hjónasvítan er með sérbaðherbergi og fataherbergi. Annað svefnherbergi, annað baðherbergi og sérþvottahús gera dvölina þægilega fyrir fjölskyldu eða tvo saman á ferð með gesti.

Íbúðin verður afhent með öllum húsgögnum og húsbúnaði. Þú kemur með þína tösku og nýtur þess að eiga þinn stað í Reykjavík.

Birt flatarmál er 90,2 m², þar af 10,5 m² geymsla. Svalir eru 11,4 m² til viðbótar.

Stemningsmynd af stofu með ljósum húsgögnum; sýnir ekki íbúð 405
Stemningsmynd · Sýnir ekki íbúð 405 eða endanleg húsgögn.
Setustofa í náttúrulegum tónum með bogadregnum sófaBjört borðstofa með viðarborði og stólumSetustofa með sófa, teppi og lágum stofuborðumBorðhald og hlýleg stemning í stofu
Stemningsmyndir · Sýna ekki íbúð 405 eða endanleg húsgögn.
Íbúðin og húsið

Þægindi í hverju smáatriði.

  • Hjónasvíta

    Sérbaðherbergi og fataherbergi inn af aðalsvefnherberginu.

  • Vandað eldhús

    Ítalskar sérsmíðaðar innréttingar, quartz-borðplötur og Siemens-tæki.

  • Gólfhiti og birta

    Gólfhiti í íbúðinni og flestir gluggar gólfsíðir.

  • Sérþvottahús

    Þvottahús innan íbúðar og sérgeymsla í húsinu.

  • Lyfta í húsinu

    Þægileg leið upp á fjórðu hæð.

  • Einkastæði með rafhleðslu

    Eitt einkastæði með rafhleðslu fylgir íbúðinni í bílakjallara. Aðkeyrsla frá Laugavegi og Nóatúni.

  • Aðgangsstýrð bílageymsla

    Bílnúmerastýring og öryggismyndavélar í bílageymslunni.

  • Svalir og inngarður

    11,4 m² svalir til norðurs og skjólgóður sameiginlegur inngarður á Heklureit.

Heimkoma sér um húsbúnað, rekstur og umsjón samkvæmt H-klassa gæðastaðlinum.

Íbúð 405

Pláss fyrir samveru.
Og næði.

Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Bjart alrými fyrir góðar stundir og sérþvottahús við anddyrið.

Hæð
4. hæð
Birt flatarmál
90,2 m²
Þar af geymsla
10,5 m²
Svalir til norðurs
11,4 m²
Einkabílastæði
1 í bílakjallara með rafhleðslu
Opna grunnmynd í fullri stærð
Grunnmynd íbúðar 405: tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, alrými, þvottahús og svalir
Grunnmynd frá Heklureit. Teikning og uppröðun húsgagna eru til viðmiðunar.
Átta eigendur · Sex vikur á ári

Eigðu þinn hlut í borginni.

Þú kaupir 12% eignarhlut í íbúðinni og færð 42 daga á ári til ráðstöfunar. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón.

Kaupverð á hlut

Laugavegur 170 · Íbúð 405

14.400.000 kr.

12% eignarhlutur · Öll húsgögn og húsbúnaður innifalinn

  • 42 dagar · 6 vikur á ári
  • 21 dagur á háannatíma og 21 á deyfðartíma
  • Bókað í bókunarkerfi Heimkomu
  • Rekstur og kostnaður deilist á eigendur
Fá nánari upplýsingar
Áætlaður mánaðarkostnaður

Umsjón og rekstur saman.

Um 25.000 kr. á hlut

Á mánuði, með þjónustu Heimkomu

  • Rafmagn, hiti, tryggingar og fasteignagjöld
  • Hússjóður, sameign, lyftur og bílakjallari
  • Reglulegt viðhald og viðgerðir
  • Framlag til endurnýjunar húsgagna og húsbúnaðar
  • Þjónusta og umsjón Heimkomu
Bóka kynningarfund

Samanlagt kaupverð átta eigendahluta er 115.200.000 kr. Öll húsgögn og húsbúnaður eru innifalin. Við kaup bætist 0,8% tengigjald við. Mánaðarkostnaður er áætlun. Greiðslur og afhending fara eftir kaupsamningi.

Eigin dvöl · Tekjudagar · ThirdHome

Þínir dagar. Þínir möguleikar.

01 · Eigin notkun

Njóttu borgarinnar.

Nýttu þína daga í Reykjavík með fjölskyldu og vinum, hvort sem þú kemur vegna vinnu, menningar eða samveru.

Skoða bókunarreglur
02 · Tekjudagar

Leigðu með Heimkomu.

Leggðu hluta af þínum dögum í Tekjudaga. Heimkoma sér um útleiguna og tekjurnar geta lækkað kostnaðinn við eignarhaldið.

Kynntu þér Tekjudaga
03 · ThirdHome

Upplifðu nýja staði.

Nýttu hluta af þínum vikum til húsaskipta í gegnum ThirdHome og upplifðu nýja staði erlendis, samkvæmt aðildar- og bókunarskilmálum.

Kynntu þér ThirdHome
Laugavegur 170 · Heklureitur

Borgin innan seilingar.

Gakktu niður Laugaveginn í kaffihús, verslanir og veitingastaði. Njóttu menningarlífsins, hittu fólkið þitt og komdu svo heim á þinn eigin stað.

Staðsetningin tengist vel helstu samgönguæðum borgarinnar. Einkastæði í bílakjallara auðveldar komuna þegar þú ert á bíl og inngarðurinn býður upp á skjól frá borgarlífinu.

Harpa við höfnina í Reykjavík
Menning, matur og góðar stundir í Reykjavík.
Heimkoma Reykjavík

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.