Sleppt og haldið – Minnkaðu skuldbindingar, haltu orlofshúsinu

Seldu Heimkomu hluta í orlofshúsinu þínu og fáðu þannig meðeigendur sem deila mér þér kostnaði og láttu Heimkomu um viðhald og umsýslu. Þú heldur áfram að njóta hússins í þann tíma sem þú velur án vesenis.

Af hverju velja “Sleppt og haldið”?

Þessi lausn hentar eigendum sem vilja: 

Lækka skuldbindingar og losa um eigið fé.

Losna við viðhald, umsýslu og daglega ábyrgð.

Halda áfram að njóta hússins.

Fá faglega aðstoð Heimkomu við sölu og rekstur.

Dæmi um eiganda

Anna á orlofshús metið á 100 milljónir króna. Hún selur 6 hluti af 8 í gegnum Heimkomu, heldur eftir 2 hlutum (25% eignarhlut) og:

Losar um 75 milljónir króna.

Lækkar mánaðarlegan kostnað.

Nýtur hússins 12 vikur á ári.

Losnar við allt viðhald og umsýslu.

Ferlið

Svona einfalt er að koma orlofseigninni inn í Heimkomu:

Sendu inn umsókn

Heimkoma metur eignina

Samþykki og samningar

Uppfærsla í H-klassa ef þarf

Sala hluta hefst

Markaðssetning innan 2 mánaða

Nýir eigendur taka við

Þú heldur eftir 1–4 hlutum

Nýtir húsið

12 vikur á ári án umsýslu eða viðhalds

Dæmi um eiganda

Anna á orlofshús metið á 100 milljónir króna. Hún selur 6 hluti af 8 í gegnum Heimkomu, heldur eftir 2 hlutum (25% eignarhlut) og:

High Season

  • Max ein vika í einu
  • Ein vika hlé milli bókana sama eiganda
  • 3 vikur alls á ári

Low Season

  • Allt að 3 vikur samfellt
  • Meiri sveigjanleiki í bókunum
  • 3 vikur alls á ári

Kostnaður og ávinningur

Að taka upplýsta ákvörðun felur í sér að vega saman bæði útgjöld og ávinning. Með skýru yfirliti um kostnað færðu betri mynd af fjárhagslegum skuldbindingum. Á sama tíma verður sýnilegt hvaða ávinningur og tækifæri fylgja fjárfestingunni.

Þjónustuþóknun

Heimkoma tekur 4% eignarhlut sem þjónustuþóknun

Uppfærslukostnaður

Ef húsið þarfnast endurbóta áður en sala hefst (á ábyrgð seljanda ef sala mistekst)

Rekstrarkostnaður

Seljandi greiðir þar til hlutar seljast. Nýir eigendur taka við kostnaði frá kaupdegi

Algengar spurningar

Við höfum tekið saman algengar spurningar til að gera ferlið einfaldara. Hér finnur þú skýr svör við því sem flestir spyrja um. Markmiðið er að veita þér skjót og gagnleg svör á einum stað.
Hvað er "Sleppt og haldið"?
Þetta er þjónusta fyrir eigendur orlofseigna sem vilja selja hluta í húsinu sínu, lækka skuldbindingar og kostnað, en halda áfram að njóta hússins allt að 6 vikur á ári – án þess að þurfa að sjá um viðhald eða umsýslu.
Þú getur selt 4-7 hluti af 8 mögulegum hlutum. Þú verður að halda eftir að minnsta kosti 1 hlut (12,5% eignarhlut) til að tryggja áframhaldandi notkun.
Hver hlutur veitir 6 vikna notkun á ári. Ef þú átt 2 hluti færðu 12 vikur, ef þú átt 1 hlut færðu 6 vikur.
Heimkoma tekur 4% eignarhlut sem þjónustuþóknun. Auk þess koma uppfærslukostnaður ef húsið þarfnast endurbóta og rekstrarkostnaður þar til sala lýkur.
Ef húsið þarfnast uppfærslu í H-klasa greiðir seljandi kostnaðinn. Ef sala mistekst er seljandi ábyrgur fyrir þessum kostnaði.
Notkun skiptist í high season (3 vikur) og low season (3 vikur). High season: max 1 vika í einu með 1 viku hléi milli bókana. Low season: allt að 3 vikur samfellt.
Heimkoma sér um allt viðhald, umsýslu og rekstur. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu eftir að salan lýkur.
Markaðssetning hefst innan 2 mánaða frá undirritun samnings. Salan getur tekið 6-18 mánuði eftir eftirspurn og staðsetningu.
Já, þú færð greitt fyrir hvern hlut sem selst. Ef þú selur 6 hluti færðu 6 greiðslur á mismunandi tímum.
Þú getur selt fleiri hluti síðar með sama hætti, svo lengi sem þú heldur eftir að minnsta kosti 1 hlut.
Heimkoma notar faglega matsmenn til að meta eignina og ákveða sanngjarnt markaðsverð fyrir hvern hlut.
Þú getur hætt í ferlinu fram að undirritun sölusamninga. Eftir það ertu bundinn af samningnum.
Heimkoma markaðssetur hlutina opið en þú getur komið með tillögur að mögulegum kaupendum.
Við mælum með að þú ráðfærir þig við endurskoðanda um skattalegar afleiðingar sölu hluta í orlofseigninni.
Öll bókun fer fram í bókunarkerfi Heimkomu. Þú færð aðgang að kerfinu þar sem þú getur séð tiltækar vikur og bókað.

Taktu fyrsta skrefið – við sýnum þér restina

Sameignarfyrirkomulagið er þekkt um allan heim. Hér á landi hefur þetta helst verið nýtt varðandi flugvélar og báta, en nú nýtist þetta fyrirkomulag til að einfalda okkur að eignast drauma orlofseign á þess að fjárfesta aleigunni og vera alltaf með hnút í maganum útaf bankinu í ofnunum.

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.