Reglur Heimkoma – einfaldar, skýrar og sanngjarnar

Reglurnar tryggja að sameign virki fyrir alla: jafnræði, traust, gæði og ánægju. Hér eru helstu atriðin útskýrð á mannamáli.

Notkun

Notkunardagar – allir fá jafnt

Við höfum sett upp bókunarkerfi sem tryggir sanngjarna dreifingu daga yfir árið. Þú færð aðgang að 100 dögum og getur skipulagt frí með fyrirvara eða bókað með litlum fyrirvara fyrir helgar og styttri ferðir. Einnig getur þú skipt dögum við aðra í samfélaginu.

Sameign

Sameign krefst virðingar

Allir eigendur bera ábyrgð á að ganga vel um. Þú skilur eftir húsið í sama ástandi og þú vilt taka við því – hreint, heilt og tilbúið fyrir næsta eiganda. Heimkoma býður fagþrif og reglubundið eftirlit sem hægt er að nýta.
Umsjón eigna

Eignastu þrjú lúxus sumarhús –

Við hjá Heimkomu sjáum um allt rekstrarlegt: viðhald, greiðslur, þjónustu og tilsjón með eignunum. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu, en færð samt fulla yfirsýn yfir kostnað og framkvæmdir í gegnum appið.
Our Commitment
Experience peace of mind with our comprehensive management services for your vacation home.
Transparent Oversight
Stay informed about all costs and operations effortlessly through our user-friendly app.
Skipulögð útleiga

Leigðu daga þína – þú ræður

Ef þú sérð fram á að nýta ekki alla dagana þína getur þú ákveðið að leigja hluta þeirra í gegnum Heimkomu. Við sjáum um allt ferlið – auglýsingar, bókanir og greiðslur. Tekjur dragast frá rekstrarkostnaði eða fara í niðurgreiðslu.

Skoða allar reglur

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Suspendisse varius enim in eros elementum tristique.

Sala án vanda, hvenær sem hentar

Þú getur selt eignarhlutinn þinn hvenær sem er. Heimkoma aðstoðar við söluna og tryggir að ferlið gangi hratt og örugglega. Ef kaupandi finnst ekki innan 18 mánaða, höfum við innlausnartryggingu í boði.
Auðveld innganga
Ef við eigum laust getur þú keypt og byrjað að nota þínar eignir á innan við viku.
Einföld útganga
Við aðstoðum þig við að selja þinn hlut. Ef hann selst ekki á 18 mánuðum kaupum við hann af þér.

Allar reglur

Heimkoma sér um allan rekstur og all viðhald

Við höfum tekið saman allar reglur Heimkomu í heild á sérsíðu. Þú getur skoðað þær hvenær sem er – eða hlaðið niður PDF.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.