Ef þú ert með spurningar, eða vilt taka næsta skref er best að hafa samband eða bóka fund. Við svörum öllum þínum spurningum í síma, með tölvupósti eða á fundi - þitt er valið.
M-F 9:00 til 17:00
Svefnherbergi
Baðherbergi
Gisti aðstaða
Stærð
Þetta glæsilega frístundahús í Húsafelli sameinar lúxus, ró og hlýja heimilisstemningu í einu eftirsóttasta útivistarsvæði landsins. Húsið er rúmgott og vel skipulagt með góðum svefnrýmum og björtum sameiginlegum svæðum þar sem fjölskylda og vinir geta notið samveru í þægindum.
Stórir gluggar tengja rýmin við náttúruna og fylla húsið af birtu og ró. Í stofu og borðrými myndast notaleg stemning þar sem einfalt er að slaka á eftir daginn. Útisvæðið er sérstaklega vel heppnað með rúmgóðri verönd, heitum og köldum potti og sauna sem skapa einstaka aðstöðu til slökunar allt árið.
Hér er allt tilbúið – vönduð innrétting, fullbúið eldhús og þægindi sem gera dvölina einfaldlega betri frá fyrstu mínútu.
Húsafell býður upp á fjölbreytta upplifun allt árið, hvort sem það eru gönguferðir, jöklaferðir, sundlaugar, norðurljós eða rólegir dagar í kyrrðinni. Þetta er staður til að njóta, hvíla sig og skapa minningar í einstöku umhverfi.
Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa ⓘ.
Við erum til taks til að svara öllum spurningum sem þú kannt að hafa um Heimkomu, um þetta hús, þetta samfélag, eða aðrar útfærslur. Ekki hika við að hafa samband eða bóka fund.
Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband.
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.