Úrvalseign á Akureyri

Akureyri, Ísland
Glæsilegt og mikið endurnýjað hús á þremur hæðum rétt við miðbæ Akureyrar. Útsýni yfir Pollinn, gufubað, heitur og kaldur pottur og vönduð rými skapa fullkomna aðstöðu til að njóta – allt árið.
5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

10

Gisti aðstaða

216 m2

Stærð

Um þessa frístundaeign

Þetta fallega og mikið endurnýjaða einbýlishús á þremur hæðum sameinar lúxus, rými og notalega heimilisstemningu á frábærum stað á Akureyri. Húsið er rúmgott (216 m²) og hentar vel fyrir fjölskyldur og vinahópa með góðu skipulagi og mörgum svefnrýmum.

Miðhæðin er hjartað í húsinu – opið og bjart rými með eldhúsi, borðstofu og stofu þar sem stórir gluggar ramma inn fallegt útsýni yfir Pollinn og í Vaðlaheiði. Arinn skapar hlýja stemningu og útgengt er á rúmgóða verönd með heitum og köldum potti sem nýtist allt árið.

Efri hæðin býður upp á þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Neðsta hæðin bætir við sveigjanleika með skemmtilegu leiksvæði, góðu geymslurými, einu svefnherbergi og baðherbergi.

Staðsetningin er einstök – örstutt í miðbæ Akureyrar en samt í rólegu umhverfi. Þetta er kjörið hús til að njóta alls þess sem Akureyri og Norðurland hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru skíðaferðir, gönguferðir, golfferðir eða einfaldlega góðir dagar í fallegu veðri.

Þægindi
internet
Þráðlaust net (Wi-Fi)
outdoor
Útisvæði
smart-home
Snjallheimili
cold-tub-icon
Kaldur pottur
hot-tub
Heitur pottur
wi-fi
Háhraða net tenging
sauna
Gufubað
pet-friendly
Gæludýravænt
premium-interior
Gæða innréttingar
parking
Bílastæði

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa .

Staðsetning

Við erum til taks til að svara öllum spurningum sem þú kannt að hafa um Heimkomu, um þetta hús, þetta samfélag, eða aðrar útfærslur. Ekki hika við að hafa samband eða bóka fund.

Tengdar eignir í sama samfélagi
Suðurland – væntanlegt lúxushús nærri Reykjavík
Suðurand, Ísland
KR 33000000
Sælureitur í Húsafelli
Húsafell, Ísland
KR 33.000.000

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.

Akureyrir s1h2 grunnmynd af skipulagi