Suðurland – væntanlegt lúxushús nærri Reykjavík

Suðurand, Ísland
Þetta hús er hluti af fyrsta samfélagi Heimkomu og verður staðsett á einu eftirsóttasta svæði Suðurlands, á Grímsborgasvæðinu eða sambærilegum stað. Húsið hefur ekki verið valið, en verður samkvæmt ströngum gæðakröfum Heimkomu – með áherslu á staðsetningu, gæði, skipulag og upplifun
3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

8

Gisti aðstaða

160

Stærð

Um þessa frístundaeign

Húsið á Suðurlandi er hugsað sem hluti af heildarupplifun Heimkomu þar sem nálægð, fjölbreytni og gæði fara saman. Svæðið er eitt það eftirsóttasta á landinu fyrir frístundir, enda býður það upp á einstaka blöndu af náttúru, afþreyingu og þægilegu aðgengi allt árið um kring. Að geta keyrt úr borginni og verið kominn í sitt eigið frístundahús á innan við klukkustund er raunverulegur kostur sem skiptir miklu máli í daglegu lífi. Þetta gerir stuttar ferðir einfaldar, eykur nýtingu eignarinnar og styrkir virði hennar fyrir eigendur.

Á Suðurlandi er að finna eitt besta golfumhverfi landsins, með fjölbreyttum völlum í nágrenni sem nýtast vel yfir sumartímann. Fyrir þá sem njóta útiveru er svæðið jafnframt ríkt af gönguleiðum, náttúruperlum og fjölbreyttri afþreyingu. Þetta er svæði sem hentar jafnt fyrir rólega afslöppun og virkari dvöl, hvort sem um er að ræða fjölskylduferðir, helgar með vinum eða lengri dvöl yfir sumartímann.

Eignin sem verður valin mun uppfylla skýrar kröfur Heimkomu um rými og gæði. Húsið verður yfir 150 fermetrar að stærð, með að minnsta kosti þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, og hannað þannig að það rúmi að lágmarki átta gesti með þægilegum hætti. Áhersla verður á opið og notendavænt skipulag, gott alrými og aðstöðu sem styður bæði við samveru og næði, ásamt útisvæði með heitum og köldum potti og gufubaði.

Hugmyndin er að skapa jafnvægi milli nálægðar við borgina og upplifunar af því að komast út úr henni. Þú ert fljót/ur að komast á staðinn, en þegar þangað er komið tekur við rólegt og vel skipulagt umhverfi þar sem allt er tilbúið. Sem hluti af Heimkomu er þetta ekki aðeins ein eign heldur hluti af stærra samhengi þar sem þú nýtur þess að eiga aðgang að vönduðu húsi á einu vinsælasta svæði landsins, án þess að bera alla fjárhagslega og rekstrarlega ábyrgð sjálf/ur. Þetta er einföld og skynsamleg leið til að eiga frístundahús sem nýtist vel og fellur að nútíma lífsstíl.

Þægindi
internet
Þráðlaust net (Wi-Fi)
outdoor
Útisvæði
smart-home
Snjallheimili
cold-tub-icon
Kaldur pottur
hot-tub
Heitur pottur
wi-fi
Háhraða net tenging
sauna
Gufubað
pet-friendly
Gæludýravænt
premium-interior
Gæða innréttingar
parking
Bílastæði

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa .

Staðsetning

Við erum til taks til að svara öllum spurningum sem þú kannt að hafa um Heimkomu, um þetta hús, þetta samfélag, eða aðrar útfærslur. Ekki hika við að hafa samband eða bóka fund.

Tengdar eignir í sama samfélagi
Úrvalseign á Akureyri
Úrvalseign á Akureyri
Akureyri, Ísland
KR 33.000.000
Sælureitur í Húsafelli
Húsafell, Ísland
KR 33.000.000

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.