Um Heimkomu

Heimkoma er íslenskt fyrirtæki sem býður nýja leið til að eiga og njóta frístundaeigna á Íslandi. Hugmyndin er einföld: að gera raunverulegt eignarhald aðgengilegra, fyrirsjáanlegra og léttara í rekstri með sameign sem byggir á skýrum reglum, gæðum og jafnræði.

Við vinnum með frístundaeignir sem eru valdar af kostgæfni, uppfærðar og reknar samkvæmt samræmdum gæðastaðli. Eigendur njóta eignarinnar – Heimkoma sér um allt hitt.

Af hverju varð Heimkoma til?

Við erum:
  • Sameign frístundaeigna
  • með skýrar reglur um notkun
  • Fagleg umsýsla, rekstur og viðhald
  • Einfalt og fyrirsjáanlegt fyrirkomulag
Við erum ekki:
  • Tímaskipti (time-share)
  • Hefðbundin leiga
  • Sjóður eða fjárfesting í félagi
  • Óformlegt samstarf án reglna

Undanfarið hefur fasteignaverð og kostnaður við rekstur hækkað verulega. Fyrir margar fjölskyldur er orðið erfitt að réttlæta kaup á frístundaeign. Á sama tíma er leigumarkaðurinn ófyrirsjáanlegur, samkeppni við ferðamenn mikil og gæði ófyrirsjáanleg.

Heimkoma varð til út frá þeirri áskorun að vilja eiga og njóta strax án þess að binda of mikið fjármagn við kaup eða í rekstri.

Lausnin er sameign sem er vel skilgreind, faglega rekin og hönnuð með raunverulega þörf og notkunar í huga.

Samfélög Heimkomu

Hvernig vinnur Heimkoma

Samfélag hjá Heimkomu er hópur eigenda sem eiga saman eina eða fleiri frístundaeign. Fyrirkomulagið getur verið mismunandi eftir samfélögum, þó reglurnar og vinnulag sé ávallt það sama.

Heimkoma sér um alla umsýslu sem fylgja eignunum. Við veljum eignirnar, undirbúum þær, uppfærum og rekum samkvæmt skýrum gæðakröfum. Eigendur þurfa ekki að sinna viðhaldi, rekstri eða öðrum daglegum verkefnum.

Notkun er skipulögð í gegnum bókunarkerfi með jafnræði eigenda að leiðarljósi. Reglur og ferlar liggja fyrir frá upphafi og gilda jafnt fyrir alla.

Traust, skýrleiki og framtíðarsýn

Heimkoma er byggð með langtímahugsun í huga. Við leggjum áherslu á skýrar upplýsingar, gagnsæi og að eigendur viti nákvæmlega hvað felst í eignarhaldinu – bæði þegar þeir ganga inn og ef þeir ákveða síðar að ganga út.

Inn- og útganga er hluti af fyrirkomulaginu.

Heimkoma er ekki fyrir alla. Heimkoma er fyrir þá sem vilja eignast frístundaeign fyrr og með minni fyrirhöfn.

Við hvetjum þig til að bóka símtal eða fund til þess að kynna þér Heimkomu frekar.

Fólkið á bak við Heimkomu

Hörður Harðarson

Stofnandi og framkvæmdastjóri

Reyndur stjórnandi sem brennur fyrir sölu og markaðsmálum.

Þorkell Guðjónsson

Stofnandi og meðeigandi

Hilmar Hilmarsson

Hönnuður

Útlits- og viðmótshönnuður, auk þess að vera tæknifiktrass.

Við leitum að eignum

Heimkoma mun ávallt vera að leita af eignum sem henta í sameign. Þannig geta eigendur eigna minnkað við sig, selt eignina til Heimkomu en á sama tíma haldið eftir einum eða fleiri hlutum.

Traustir samstarfsaðilar

Heimkoma vandar valið á samstarfsaðilum og birgjum með gæði og fagmennsku í fyrirrúmi sem hentar hverju verkefni.

Heimkoma vandar valið á samstarfsaðilum og birgjum með gæði og fagmennsku í fyrirrúmi sem hentar hverju verkefni.

tekk
vis
Tölvupóstur

Þú getur sent okkur fyrirspurn um hvað sem vekur áhuga.

Spjall

Hér er boðið uppá Whatsapp spjall. Einnig er hægt að finna okkur á facebook.

Símtal

Hvenær sem er (nánast) er hægt að ná í okkur í síma.

Skrifstofa

Okkar vinnustaður er Ísland 🙂 Best er að bóka fund til að hittast.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.