
Fyrstu skrefin sem eigandi hjá Heimkomu
Að verða eigandi hjá Heimkomu er skýrt og einfalt ferli. Frá ákvörðun til fyrstu dvalar eru öll skref skilgreind, utanumhald stafrænt og stuðningur til staðar þegar á þarf að halda.
Ef þú ert með spurningar, eða vilt taka næsta skref er best að hafa samband eða bóka fund. Við svörum öllum þínum spurningum í síma, með tölvupósti eða á fundi - þitt er valið.
M-F 9:00 til 17:00

Að verða eigandi hjá Heimkomu er skýrt og einfalt ferli. Frá ákvörðun til fyrstu dvalar eru öll skref skilgreind, utanumhald stafrænt og stuðningur til staðar þegar á þarf að halda.

Sanngjarnt bókunarkerfi er forsenda þess að sameign virki til lengri tíma. Heimkoma byggir á skýru, gagnsæju og fyrirsjáanlegu kerfi sem tryggir jafnræði allra eigenda.

Einn stærsti munurinn á Heimkomu og hefðbundnu eignarhaldi er þjónustan. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og alla umsýslu – svo eigendur geti einfaldlega notið frístundaeignarinnar.

Sameignarform Heimkomu byggir á skýru, sanngjörnu og fyrirsjáanlegu fyrirkomulagi. Eigendur deila frístundaeignum, hver með skýran notkunarrétt á ári, þar sem notkun, reglur og utanumhald eru einfalt og gangsætt.

Heimkoma er ný og skynsamleg leið til að eiga frístundaeignir á Íslandi. Með sameign tólf eigenda á þremur húsum fær hver fjölskylda tólf vikur á ári – án viðhalds, umsýslu og óþarfa fyrirhafnar.
Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband.
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.