Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun

Grein birt 2026-01-04.

Algengar spurningar – og af hverju þær skipta máli
Skýringarmynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Sameign virkar aðeins ef jafnræði er tryggt

Sameign á frístundaeignum getur verið frábær lausn, en aðeins ef allir upplifa að aðgengi og notkun séu sanngjörn. Reynslan sýnir að ágreiningur í sameign sprettur sjaldnast af ásetningi, heldur af óljósum reglum, ófyrirsjáanlegu skipulagi eða skorti á gagnsæi.

Þess vegna var bókunarkerfið eitt af fyrstu og mikilvægustu atriðunum sem við hjá Heimkomu mótuðum. Markmiðið var skýrt: engin óvissa, engin sérmeðferð og engar óformlegar undanþágur.

Bókunarkerfi sem er hannað fyrir raunverulega notkun

Í hverju Heimkomu-samfélagi eiga ákveðið margir eigendur saman ákveðið mörg frístundahús og fær hver eigandi fjalda vikna í samræmi við fjölda eigenda og eigna. Þannig fær einn eigandi af tólf í þriggja húsasamfélagi tólf vikur til umráða á ári. Þess má geta að tólf vikur er meira en meðalnotkun eiganda frístundahúsa á ári.

Árið er svo skipt í há og lágönn (high og low season). Helmingurinn af tímanum er á hvorri önn. Bókunarkerfið er hannað til að styðja þetta fyrirkomulag og tryggja að notkun dreifist jafnt yfir árið.

Kerfið byggir á skýrum reglum sem allir eigendur þekkja áður en þeir ganga inn í samfélagið. Það þýðir að bókanir eru ekki háðar persónulegum samskiptum eða samningum milli eigenda, heldur hluti af sameiginlegu kerfi.

Til að orða þetta hreint – kerfið er sett upp þannig að enginn getur tuddast yfir aðra eigendur. Kerfið er sett upp fyrir þá sem vilja réttláta notkun.

Í stuttu máli tryggir bókunarkerfið að:

  • allir eigendur hafi jafnan aðgang að eignunum
  • notkun dreifist sanngjarnt yfir tímabil
  • bókanir séu sýnilegar og rekjanlegar
  • reglur gildi jafnt fyrir alla

Þetta skapar öryggi og dregur úr misskilningi.

Fyrirsjáanleiki skapar frelsi

Þótt það kunni að hljóma mótsagnakennt, þá eykur skýrt bókunarkerfi frelsi eigenda. Þegar fólk veit fyrirfram hvernig kerfið virkar, hvenær það getur bókað og hvaða réttindi fylgja, verður skipulag einfaldara.

Eigendur geta skipulagt frístundir sínar með góðum fyrirvara og samræmt dvölina við vinnu, skóla og annað daglegt líf. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir fjölskyldur þar sem tími er oft af skornum skammti.

Það er þó reglulega möguleiki á bókun með skemmrí fyrirvara þar sem eigendum er ávallt heimilt að bóka ef eignin er laus vegna forfalla eða annars.

Reglur sem eru settar áður en á þarf að halda

Einn helsti styrkleiki bókunarkerfis Heimkomu er að reglurnar eru skilgreindar áður en samfélagið tekur til starfa. Þær eru ekki settar til að bregðast við vandamálum, heldur til að koma í veg fyrir þau.

Þetta er hluti af heildrænni nálgun að sameign, sem útskýrð er nánar í Sameignarform Heimkomu – hvernig það virkar í reynd.

Heimkoma sem hlutlaus aðili

Mikilvægur þáttur í því að bókunarkerfið virki er hlutverk Heimkomu sem hlutlauss aðila. Við fylgjum kerfinu eftir, tryggjum að reglur séu virtar og leysum úr málum ef upp koma spurningar eða álitamál.

Eigendur þurfa því ekki að takast á við slíkt sjálfir eða finna lausnir sín á milli. Kerfið og utanumhaldið sjá um það.

Bókunarkerfið sem hluti af stærri heild

Bókanir eru aðeins einn hluti af eignarhaldi hjá Heimkomu. Þær tengjast beint þjónustunni, rekstrinum og þeirri upplifun sem eigendur hafa af eigninni. Fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig þessi heild virkar er gagnlegt að lesa Heimkoma sér um allt – hvað þýðir það í raun?, þar sem þjónustuhlutinn er útskýrður nánar.

Tengt efni

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.