Þegar eignarhald verður verkefni
Margir sem eiga eða hafa átt frístundaeign þekkja tilfinninguna. Upphaflega snýst allt um notkun og ánægju, en smám saman bætast við verkefni. Greiðslur, viðhald, viðgerðir, samskipti við þjónustuaðila og áhyggjur af því hvort allt sé í lagi þegar ekki er verið að nota eignina.
Fyrir marga verður eignarhaldið meira verkefni en frí.
Við hjá Heimkomu vildum snúa þessari upplifun við.
Þjónusta sem er hluti af eignarhaldinu
Þegar við segjum að Heimkoma sjái um allt, er það ekki slagorð. Það er skilgreind þjónusta sem er hluti af fyrirkomulaginu frá fyrsta degi. Eigendur þurfa ekki að skipuleggja rekstur eða bregðast við óvæntum aðstæðum. Allt slíkt er á okkar ábyrgð.
Þetta þýðir meðal annars að Heimkoma:
- sér um daglegan rekstur eignanna
- heldur utan um viðhald og viðgerðir
- sinnir samskiptum við þjónustuaðila
- tryggir að eignir séu tilbúnar til notkunar
Þjónustan er ekki valkvæð viðbót, heldur hluti af kjarna Heimkomu.
Fyrirsjáanleiki skapar ró
Einn helsti ávinningur þess að Heimkoma sjái um reksturinn er fyrirsjáanleiki. Eigendur vita fyrirfram hvað er innifalið og þurfa ekki að hafa áhyggjur af óvæntum kostnaði eða verkefnum sem koma upp á óheppilegum tíma.
Þetta tengist beint því hvernig sameignarformið er byggt upp, sem útskýrt er nánar í Sameignarform Heimkomu – hvernig það virkar í reynd.
Gæði sem haldast með tímanum
Frístundaeignir eiga að vera staður til að njóta, ekki að eldast illa vegna skorts á viðhaldi. Með reglulegu viðhaldi, faglegri umsýslu og skýrum stöðlum tryggir Heimkoma að gæði eignanna haldist til lengri tíma.
Þetta skiptir máli fyrir upplifun eigenda í dag, en einnig fyrir framtíð eignarhaldsins. Við viljum jú að eignin vaxi í verði. Viðhald er forsenda þess að verðmæti vaxi.
Hlutlaus aðili sem sér um framkvæmdina
Í sameign er mikilvægt að einhver beri ábyrgð á framkvæmd. Heimkoma gegnir því hlutverki. Eigendur þurfa ekki að semja sín á milli um verkaskiptingu eða taka erfiðar ákvarðanir um rekstur. Við fylgjum skýrum ferlum og tryggjum jafnræði allra.
Þetta þurrkar út ágreiningi og gerir sameignina einfalda og átakalausa.
Þjónusta sem styður lífsstílinn
Heimkoma er hönnuð fyrir fólk sem vill njóta frístundaeignar án þess að hún verði stöðugt verkefni. Fyrir fjölskyldur, pör og einstaklinga sem vilja nota tímann sinn í það sem skiptir máli – ekki í umsýslu.
Fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig notkun og skipulag eru tryggð samhliða þessari þjónustu er gagnlegt að lesa Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun.






