Sameignarform Heimkomu – hvernig það virkar í reynd

Sameignarform Heimkomu

Sameign sem er hönnuð frá grunni

Sameign getur verið mjög góð lausn – en aðeins ef hún er rétt uppbyggð. Reynslan sýnir að vandamál í sameign spretta sjaldnast af fólkinu sjálfu, heldur af óljósum reglum, óskilgreindri ábyrgð og skorti á hlutlausu utanumhaldi. Öll vandamál sameignar má leysa með skýrum reglum.

Við hjá Heimkomu ákváðum því strax í upphafi að sameignarformið þyrfti að vera mótað frá grunni, með langtímahugsun og raunverulega notkun í huga.

Uppbygging samfélagsins

Í hverju Heimkomu-samfélagi eiga nokkrir eigendur saman eina eða fleiri frístundaeignir. Þetta er kjarninn í fyrirkomulaginu. Í stað þess að hver fjölskylda fjárfesti í einni eign sem nýtist takmarkað, deila eigendur aðgangi að eign með skýrum notkunarrétti.

Hver eigandi hefur fyrirfram ákveðinn fjölda vikna til umráða á ári. Þegar húsin eru þrjú, fær hver eigandi 12 vikur, en ef um staka eign er að ræða eru vikurnar 6. Þessi skipting tryggir jafnvægi milli aðgengis og nýtingar og dregur úr því að vinsæl tímabil safnist hjá fáum.

Grunnatriði sameignarformsins eru meðal annars:

  • skýrt skilgreindur eignarhlutur hvers eiganda
  • jafnn notkunarréttur allra
  • reglur sem liggja fyrir frá upphafi
  • fyrirsjáanlegt skipulag yfir árið

Þetta er ekki óformlegt samkomulag, heldur fastur rammi sem allir þekkja áður en þeir ganga inn í samfélagið. Það á við um notkun, umgengni og kostnað. Allt liggur fyrir og er skilgreint frá upphafi.

Reglur sem einfalda lífið

Algengt er að reglur í sameign séu taldar skerða frelsi. Í reynd er oft hið gagnstæða – reglurnar eru til að vernda þá sem fara eftir þeim. Skýrar reglur minnka óvissu, koma í veg fyrir ágreining og gera fólki kleift að njóta eignarinnar án þess að þurfa stöðugt að „ræða málin“. Eigendur þurfa aldrei að taka á málum. Það er okkar hlutverk.

Hjá Heimkomu eru reglurnar settar til að styðja við notkun eigenda, ekki takmarka hana. Þetta tengist beint því hvernig bókanir eru skipulagðar, sem útskýrt er nánar í Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun.

Heimkoma sem hlutlaus aðili

Mikilvægur þáttur í því að sameignarformið virki er hlutverk Heimkomu sjálfrar. Við erum ekki aðeins rekstraraðili, heldur einnig hlutlaus aðili sem fylgir eftir reglum og tryggir að fyrirkomulagið sé virt jafnt fyrir alla.

Eigendur þurfa því ekki að taka erfiðar ákvarðanir sín á milli eða leysa ágreining persónulega. Kerfið sér um það, og við fylgjum því eftir. Hafðu þó í huga að á bakvið kerfið er alltaf fólkið hjá heimkomu

Sameign sem hluti af stærri heild

Sameignarform Heimkomu stendur ekki eitt og sér. Það er hluti af heildstæðri lausn sem nær einnig til þjónustu, reksturs og sveigjanleika eigenda. Fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig þetta fellur allt saman er gagnlegt að lesa

Hvað er Heimkoma? Ný leið til að eiga og njóta frístundaeigna á Íslandi,

þar sem hugmyndafræðin og heildarmyndin eru sett í samhengi.

Fyrir hverja virkar þetta fyrirkomulag?

Sameign er snjallasta leiðin til að eiga frístundaeign í dag.

Sameignarform Heimkomu hentar fólki sem vill eiga frístundaeign, en ekki binda allt sitt lausafé í húsi og ekki bera alla ábyrgð sjálft. Fyrir þá sem meta skipulag, jafnræði og einfaldleika í daglegu lífi. Þetta er eignarhald sem er hannað til að endast, bæði í notkun og upplifun.

Þetta er aðeins byrjunin.

Skoðaðu nýjustu greinar okkar

Vertu á tánum með gagnlegum greinum og innsýn frá teyminu okkar.

Við bjóðum þér að bóka stutt símtal og fá Heimkomu útskýrða út frá þínum aðstæðum.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Heimkomu og sameign á frístundaeignum? Veldu eina af þessum leiðum til að hafa samband. 
Það eru örugglega margar spurningar og við bíðum spennt eftir því að svara þeim.

Til að byrja með er aðeins eitt samfélag í boði. Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti.